Lengi framan af var Wow Air laust við samkeppni frá Icelandair í flugi til höfuðborgar Þýskalands. Við gjaldþrot Airberlin árið 2017 þá sáu stjórnendur Icelandair sér hins vegar leik á borði og hófu flug til borgarinnar með stuttum fyrirvara.
Árin á eftir flugu svo þotur Icelandair til Tegel flugvallar í vesturhluta borgarinnar og Wow Air til Schönefeld í austurhlutanum.
Núna hefur Tegel verið lokað og öll flugumferð til Berlínar fer nú um Berlin Brandenburg flugstöðina sem stendur við flugbrautirnar sem áður voru kenndar við Schönefeld.
Og þangað heldur þota Play á föstudaginn í fyrstu áætlunarferð félagsins til Þýskalands. Samtals gerir Play ráð fyrir sautján ferðum til Berlínar í júlí en á áætlun Icelandair eru 26 ferðir.
Þotur þess fyrrnefnda munu leggja í hann frá Keflavíkurflugvelli að morgni dags en þota Play fer í loftið um kaffileytið.
Eins og staðan er í dag þá kosta ódýrustu miðarnir hjá Icelandair til Berlínar, nú í júlí, 33.945 krónur. Er þá miðað við farmiða báðar leiðir ef dvalið er úti í eina viku.
Hjá Play kostar þess háttar miði að lágmarki 23.283 krónur. Hafa ber í huga að í báðum tilvikum fylgir ekki innritaður farangur og hjá Play þarf að borga aukalega 3.100 krónur fyrir hefðbundinn handfarangur.