Samfélagsmiðlar

Fjórðungi fleiri ferðir bókaðar

Hjónin Kristín Björnsdóttir og Erling Aspelund stofnuðu Iceland Encounter árið 2009.

Stærsti kúnnahópur Iceland Encounter eru efnamiklir Bandaríkjamenn og nú í maí framkvæmdi ferðaskrifstofan nokkrar ferðir. Upp úr miðjum júní eykst straumurinn og júlí og ágúst líta vel út segir Erling Aspelund framkvæmdastjóri og meðeigandi Iceland Encounter.

„Leiðsögumönnum okkar er allsstaðar tekið fagnandi og algengt að starfsfólk í móttöku segist ekki hafa séð leiðsögumann síðan í fyrra. Þetta eru því vorboðar ljúfir,” segir Erling um byrjunin á sumarvertíðinni.

„Það er góður gangur á sölunni hjá okkur. Staðfestar pantanir í apríl og maí, á ferðum sem farnar verða síðar á árinu, eru um fjórðungi fleiri en á sama tíma árið 2019. Aukning í fjölda fyrirspurna er ennþá meiri en margir ferðalangar eru ennþá hikandi, bæði vegna sýnatöku á landamærunum og annarra þátta. Þessar fyrirspurnir verða vonandi að pöntunum síðar,” bætir Erling við.

Hann segir það líka greinilegt að þeir sem ætla að koma til Íslands í sumar bóki lengri og dýrari ferðir.

„Bestu hótelin eru því þegar farin að vera þéttbókuð frá lokum júní og fram í ágúst. Meðal dvalartíminn var venjulega fimm til sex dagar en er núna sjö til átta.”

Sem fyrr segir þá hefur bandaríski markaðurinn verið kjarninn í kúnnahópi Iceland Encounter. Og þaðan koma flestar fyrirspurnir að sögn Erlings. Hann segir breska markaðinn að lifna við en ennþá séu evrópskar ferðaskrifstofur mjög hikandi með að bóka.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …