Samfélagsmiðlar

Metvetur í komum ítalskra ferðamanna í uppsiglingu

Það er í ágúst ár hvert sem fjöldi ítalskra ferðamanna hér á landi nær hámarki. Yfir vetrarmánuðina koma svo hlutfallslega mun færri túristar hingað frá Ítalíu en frá Frakklandi og Spáni.

Megin skýringin á því gæti legið í litlum sem engum flugsamgöngum milli Íslands og Ítalíu utan háannatímans. En nú ætla stjórnendur Wizz Air að veðja á að Ítalir vilji ferðast til Íslands í auknum mæli yfir vetrarmánuðina. Félagið hefur nefnilega á boðstólum Íslandsflug frá þremur ítölskum borgum næsta vetur og samtals nemur framboðið um 6.500 sætum í hverjum mánuði.

Til samanburðar komu að jafnaði um 2.500 ítalskir ferðamenn til Íslands veturinn 2017 til 2018. Veturinn eftir spreytti Norwegian sig á flugi hingað frá Róm og þá fjölgaði ítölsku ferðamönnunum um þriðjung.

Ef áætlunarflug Wizz Air til Íslands frá Mílanó, Róm og Napólí fær ágætis undirtektir meðal Ítala þá er ljóst að fjöldi þeirra hér á landi næsta vetur verður miklu meiri en áður. Og það eru góð tíðindi fyrir ferðaþjónustuna út á landi því þeir ítölsku túristar sem sækja Ísland heim yfir veturinn eru líklegri til að gista utan höfuðborgarsvæðisins en ferðamenn gera almennt.

Með þessum auknu flugsamgöngum milli Íslands og Ítalíu stefnir líka í að Íslendingar muni fjölmenna til fleiri staða á Ítalíuskaganum næsta vetur en bara til skíðasvæðanna nyrst í landinu.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …