Lengi vel flaug svissneska leiguflugfélagið Edelweiss hingað til lands á sumrin með farþega ferðaskrifstofunnar Kontiki. Icelandair tók svo við þeim viðskiptum og í kjölfarið lögðust af ferðir Edelweiss til Íslands.
Nú hefur svissneska flugfélagið, sem tilheyrir Lufthansa Group, hins vegar sett í sölu áætlunarferðir til Íslands frá Zurich. Flogið verður alla miðvikudaga og laugardaga frá 3. júlí og út september.
Farþegar sem hefja ferðalagið á Íslandi geta bókað miða á heimasíðu flugfélagsins Swiss en líka hjá Lufthansa. Bæði tilheyra Lufthansa samsteypunni.