Samfélagsmiðlar

Skipar sitt fólk í stjórnunarstöður

Jayne Hrdlicka tók óvænt við sem forstjóri Virgin Australia stuttu eftir að Bain Capital hafði eignast ástralska flugfélagið. Sá sjóður verður nú stærsti hluthafi Icelandair Group.

Flugfélagið Virgin Australia hefur ekki skilað hagnaði í mörg ár og fór félagið í greiðslustöðvun stuttu eftir að Covid-19 faraldurinn hófst í fyrra. Í kjölfarið var leitað tilboða í reksturinn. Meðal þeirra sem sýndu félaginu áhuga voru Indigo Partners sem lengi íhuguðu kaup á Wow Air.

Það var hins vegar fjárfestingastjóðurinn Bain Capital sem bauð best en í gærkvöld var tilkynnt að sá sjóður hefði gert samning um kaup á nýju hlutafé í Icelandair Group fyrir 8,1 milljarð króna.

Ef kaupin verða samþykkt af núverandi hluthöfum þá eignast Bain Capital 16,6 prósent hlut í Icelandair Group og fær jafnframt sæti stjórnarformanns. Úlfar Steindórsson, nýverandi stjórnarformaður, mun nefnilega láta af störfum samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu. Frekari breytingar í efstu lögum Icelandair eru ekki boðaðar í tilkynningunni.

Og það voru heldur engar breytingar í framkvæmdastjórn Virgin Australia í deiglunni þegar Bain Capital tók við lyklavöldunum þar. Forstjóri félagsins, Paul Scurrah, hafði til að mynda lýst yfir opinberum stuðningi sínum við tilboð Bain Capital. Bæði þegar sannfæra átti starfsmenn um tilboð sjóðsins og líka kröfuhafa.

Bain Capital gerði mikið úr þessum stuðning forstjórans enda var sá vinsæll í röðum starfsfólks líkt og rakið er í grein Financial Review.

Sex vikum eftir að Bain eignaðist Virgin þá var hins vegar tilkynnt að Scurrah myndi láta hætta sem forstjóri. Við starfi hans tók Jayne Hrdlicka en sú hafði meðal annars unnið fyrir Bain Capital og var ráðgjafi sjóðsins í tengslum við kaupin á Virgin.

Og Hrdlicka er ekki eini stjórnandi ástralska flugfélagsins sem verið hefur launþegi hjá Bain Capital. Nýr framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála Virgin Australia kemur nefnilega beint frá Bain Capital.

Þess ber að geta að Bain Capital er eini eigandi Virgin Australia.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …