Samfélagsmiðlar

Tengiflug Icelandair áfram í dvala eða ferðamenn færri en bankarnir spáðu

FLUGUMFERÐIN ER AÐ AUKAST HRATT ÞESSA DAGANA EN ÞAÐ ERU SÁRAFÁIR SKIPTIFARÞEGAR Í ÞOTUNUM SEM HINGAÐ KOMA. ÖFUGT VIÐ ÞAÐ SEM VAR FYRIR COVID-19.

Isavia reiknar með að tvær milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll í ár. Þetta fram í fréttum Stöðvar 2. Hópurinn var síðast svona fámennur árið 2010. Það er árið sem Eyjafjallajökull gaus og stöðvaði flugumferð hér á landi og víða út í heimi.

Hingað komu 459 þúsund ferðamenn árið 2010. Spár íslensku bankanna og Seðlabankans gera aftur á móti ráð fyrir 600 til 800 þúsund erlendum ferðamönnum í ár.

Ef spárnar eiga að ganga eftir, samhliða áætlun Isavia um 2 milljónir farþega, þá þarf hlutfall Íslendinga á Keflavíkurflugvellir að vera óvenju lágt eða skiptifarþegarnir sárafáir.

Ástæðan fyrir því er sú staðreynd að hver ferðamaður kemur tvisvar fyrir í farþegatalningu Isavia. Fólk er talið þegar það lendir á Keflavíkurflugvelli og aftur þegar haldið er af landi brott. 459 þúsund ferðamenn eru því í raun 918 þúsund farþegar.

600 til 800 þúsund ferðamenn jafngilda þá 1,2 til 1,6 milljón farþega eða allt að 80 prósent af þeim fjölda farþega sem Isavia telur að muni fara um Leifsstöð í ár.

Svo hátt hlutfall erlendra ferðamanna er óraunhæft, meðal annars vegna ásóknar Íslendinga í utanlandsferðir á seinni hluta þessa árs. Árið 2010 voru Íslendingar um þrjátíu prósent farþega á Keflavíkurflugvelli. Verði vægi þeirra álíka hátt í ár, á sama tíma og ferðamannhópurinn verður í takt við spár bankanna, þá er lítið pláss fyrir skiptifarþega innan tveggja milljóna marksins.

Fjöldi skiptifarþega er líka ennþá stórt spurningamerki því bandarísk og kanadísk landamæri eru ennþá lokuð ferðamönnum.

Skiptifarþegar hafa hins vegar verið stór hluti af farþegum Icelandair eða allt að helmingur síðustu ár. Árið 2010 var hlutfallið 38 prósent en þá nýtti ein og hálf milljón farþega sér ferðir Icelandair. Félagið reiknar með að þeir verði 1,4 milljónir í ár samkvæmt því sem fram kom áætlun sem lögð var fram í tengslum við hlutafjárútboð flugfélagsins sl. haust.

Þeirri tölu nær félagið ekki ef ferðamenn verða 800 þúsund í ár á sama tíma og farþegafjöldinn á Keflavíkurflugvelli verður í takt við spá Isavia. Samkeppnin um ferðamennina er nefnilega miklu meiri en hún var árið 2010 og markaðshlutdeild Icelandair hefur dalað mikið síðan þá.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …