Nú ættu þotur fimm flugfélaga að fljúga reglulega milli Keflavíkurflugvallar og Lundúna ef sumaráætlanir flugfélaganna frá því í vor hefðu gengið eftir.
Stjórnendur Wizz Air hafa hins vegar dregið það að taka upp þráðinn í ferðum sínum hingað frá Luton flugvelli, skammt frá bresku höfuðborginni.
Fyrstu ferð hefur verið seinkað reglulega og núna er hún ekki á dagskrá fyrr en 2. nóvember.
Farþegar á leið héðan til London hafa engu að síður úr miklu að moða. Þannig fljúga þotur Icelandair og British Airways reglulega til Heathrow, Play til Stansted og easyJet til Luton flugvallar.
Icelandair og easyJet gera svo ráð fyrir að hefja flug milli Íslands og Gatwick í október.