Samfélagsmiðlar

Ísraelar eina þjóðin sem bætti í

Flestar gistinætur Ísraela eru á hótelum höfuðborgarinnar en þær eru litlu færri á Suðurlandi.

Gistinóttum útlendinga á íslenskum hótelum fjölgaði í nýliðnum júní frá sama tíma í fyrra. Þetta var viðbúið enda voru íslensk landamæri næstum lokuð fram í miðjan júní í fyrra vegna útbreiðslu kórónaveirunnar.

Það er fæst því betri mynd af stöðu mála með því að bera saman gistinætur í nýliðnum júní við það sem var í júní í hittifyrra. Og niðurstaðan er sú að þær voru nærri því fjórum sinni færri í ár.

Þegar fjöldinn er skoðaður eftir þjóðum kemur svo í ljós að í öllum tilvikum nema einu fækkaði nóttunum. Ísraelar voru eina þjóðin sem bætti við gistinóttum og voru þær fjórðungi fleiri á íslenskum hótelum í júní sl. en á sama tíma árið 2019.

Af þeim sökum kemst Ísraelar að þessu sinni inn á lista yfir þær tíu þjóðir sem voru fjölmennastar á hótelum landsins í síðasta mánuði.

Sem fyrr þá halda ísraelskir túristar á Íslandi sig að mestu á hótelum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Þar er meginpartur gistinátta þeirra en núna jókst ásókn Ísraela töluvert í gistingu á Suðurnesjunum. Gistinæturnar þar voru þrefalt fleiri en í júní 2019.

Þess má geta að eingöngu er hægt að greina mánaðarlegar gistináttatölur eftir þjóðernum þegar kemur að hótelgistingu. Þar með er ekki hægt að skoða ásókn mismunandi þjóða í gistiheimili, orlofsíbúðir og aðra kosti eftir mánuðum.

Það var fyrst nú í júlí sem tvö ísraelsk flugfélög hófu að fljúga hingað til lands á vegum ferðaskrifstofa. Það má því gera ráð fyrir að uppsveiflan í heimsóknum Ísraela til Íslands haldi áfram nú í sumar.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …