Samfélagsmiðlar

Sárafáar ferðir til eina landsins sem ekki telst áhættusvæði

Eins og er þá er einfaldast að komast til Grænlands frá Akureyri með Norlandair.

Vegna fjölgunar kórónuveirusmita í mörgum löndum heims er íbúum Íslands ráðlagt að ferðast ekki að nauðsynjalausu til skilgreindra áhættusvæða.

Og samkvæmt skilgreiningu sóttvarnaryfirvalda þá er Grænland eina landið sem ekki flokkast sem áhættusvæði. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt var í gær á vef embættis landlæknis.

Kvóti á flugferðir

Sóttvarnaryfirvöld á Grænlandi hafa nú í heimsfaraldrinum haldið landinu lengst af lokuðu. Nú mega útlendingar hins vegar ferðast þangað á ný en gerð er krafa um að þeir sem ekki hafa verið fullbólusettir fari í fimm daga sóttkví. Eins verða allir að hafa með sér nýtt PCR-próf við komuna til Grænlands.

Grænlensk stjórnvöld takmarka einnig framboð á flugi til landsins og þannig hefur Icelandair aðeins heimild til að fljúga þangað einu sinni í viku með þrjátíu farþega. Félagið ákvað að nýta kvótann fyrir flug til Nuuk.

„Þetta er mun minni tíðni en í venjulegu árferði og flugið er meira og minna fullbókað,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.

Bæta fljótlega við annarri ferð frá Akureyri

Norlandair hóf farþegaflug frá Akureyri til Nerlerit Inaat, við austurströnd Grænlands, á nýjan leik þann 1.júlí sl. Auk þess hefur félagið flogið þangað með frakt einu sinni í viku.

Farþegaflugið er á miðvikudögum og fljótlega verðu annarri ferð bætt við að sögn Friðriks Adólfssonar, framkvæmdastjóra Norlandair. „Við erum bara að finna hver þörfin er,“ bætir hann við.
 
Í byrjun ágúst hefst svo áætlunarflug Norlandair til Nerlerit Inaat frá Reykjavíkurflugvelli sem er hluti af samningi flugfélagsins við heimastjórn Grænlendinga.

Auk Norlandair og Icelandair, áður Air Iceland Connect, þá hefur Air Greenland haldið úti ferðum milli nágrannaþjóðanna. Fyrsta ferð Air Greenland til lands er á dagskrá þann 11. september. Flogið verður milli Nuuk og Keflavíkurflugvallar.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …