Samfélagsmiðlar

Setja Íslandsflug aftur á dagskrá næsta sumar

Svo gæti farið að fjögur flugfélög muni fljúga milli Keflavíkurflugvallar og Toronto næsta sumar.

Ekkert varð af áætlunarflugi Air Canada til Íslands í fyrra og heldur ekki í ár enda er Kanada í raun ennþá lokað. Íbúar landsins verða að fara í sóttkví við heimkomuna og ferðamönnum er ekki hleypt yfir landamærin þó þeir hafi verið bólusettir.

Strax í vor gáfu stjórnendur Air Canada frá sér flug til Íslands í sumar en þeir sjá þó tækifæri í að snúa tilbaka næsta vor. Bæði með áætlunarferðir frá Montreal og Toronto.

Það staðfestir Marc Sam, svæðisstjóri Air Canada á Norðurlöndunum, í svari til Túrista. Hann segir ætlunina að fljúga fjóra ferðir í viku frá Toronto og þrisvar í viku frá Montreal líkt og áður.

Í báðum tilvikum verða Boeing MAX þotur nýttar í ferðirnar til Keflavíkurflugvallar. Þess háttar flugvélar fluttu líka farþega kanadíska flugfélagsins hingað sumarið 2018 en eftir að kyrrsetningu MAX þota á heimsvísu þá varð Air Canada að nota litlar Airbus A319 í ferðirnar til Íslands. Þar með dró nokkuð úr sætaframboðinu.

Gera má ráð fyrir að næsta sumar hafi farþegar úr ferðum alla vega þriggja flugfélaga að velja þegar ferðast á milli Íslands og Toronto. Sú borg er fastur liður í leiðakerfi Icelandair og áður hefur komið fram að stjórnendur Play horfa til borgarinnar.

Til viðbótar þá hefur kanadíska flugfélagið Westjet haft til skoðunar að fljúga hingað til lands frá bæði Toronto og Calgary. Að öllu óbreyttu er því útlit fyrir harða samkeppni í áætlunarflug milli Íslands og fjölmennustu borgar Kanada.

Þess má geta að áætlunarflug Icelandair til Kanada liggur ennþá niðri en félagið áformar nú að hefja flug til Toronto á nýjan leik þann 4. ágúst. Aftur á móti er ekki lengur að finna neitt beint flug til Vancouver á heimasíðu flugfélagsins. Sú borg var þó hluti af upphaflegri sumaráætlun Icelandair.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …