Samfélagsmiðlar

Sterkari samningsstaða gagnvart flugbókunarsíðum

Farþegar á leið milli London og Keflavíkurflugvallar hafa úr ferðum fimm flugfélaga að velja og þegar úrvalið er það mikið geta flugleitarsíður einfaldað verðsamanburðinn.

Heimasíður sem sérhæfa sig í að leita að flugmiðum rukka flugfélög um þóknanir fyrir að beina til þeirra viðskiptum. Ein stórtæk á þessu sviði er leitarsíðan Kayak en sú vísar í dag ekki beint á heimasíðu Play. Sama má segja um bókunarsíðuna Expedia því sú selur ekki flugmiða með hinu nýja íslenska flugfélagi.

Spurður um ástæðurnar fyrir þessu þá bendir Birgir Jónsson, forstjóri Play, á að aðeins sé einn og hálfur mánuður frá því að flugfélagið hóf miðasölu. Tæknileg innleiðing hjá Play og bókunarsíðunum taki sinn tíma. Hann segir þó ekki ætlunina að flugmiðar Play verði til sölu hjá hinum og þessum bókunarsíðum.

„Við erum að velja síðurnar vel og ætlum ekki að birtast þar sem við greiðum of mikið eða fáum ekki gögn um farþega og getum illa selt þeim viðbótarþjónustu. Við munum því ekkert endilega vera á öllum stöðum.“

Birgi bendir líka á að það sé einfaldara að semja við bókunarsíðurnar í dag þegar starfsemin er komin í gang og félagið sé vel fjármagnað. Samningsstaðan sé því betri núna en þegar félagið var ennþá aðeins viðskiptahugmynd.

Í ljósi þess að þóknun flugleitarsíðnanna er upp á nokkrar prósentur þá reyna flugfélög eftir fremsta magni að fá fólk til að bóka beint hjá sér.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …