Það var tuttugu og eitt flugfélag sem bauð upp á reglulegar ferðir til og frá landinu í nýliðnum júlí. Og sem fyrr stóð Icelandair undir stærstum hluta eða ríflega annarri hverri brottför.
Það er samt umtalsvert minna en í júlí 2019 þegar félagið var með tvær af hverjum þremur áætlunarferðum frá Keflavíkurflugvelli. En að jafnaði flugu þotur Icelandair tuttugu og þrjár áætlunarferðir á dag frá Keflavíkurflugvelli í júlí í ár.
Ungverska flugfélagið Wizz Air var næst umsvifamest í mánuðinum með um þrjár og hálfa ferð á dag og svo kom hið bandaríska Delta með þrjár á dag.
Nýliði á listanum yfir fimm stærstu flugfélögin á Keflavíkurflugvelli er svo Play. Að meðaltali var félagið með tvær brottfarir á dag eða jafn margar og United Airlines.