Samfélagsmiðlar

Ætla að minnka bilið enn frekar í september

Flugvöllurinn í Kaupmannahöfn en þangað gerir Icelandair ráð fyrir flestum ferðum í september.

Umferðin um Keflavíkurflugvöll hefur aukist hratt í sumar og þar stendur Icelandair undir meirihluta ferðanna. Ef áætlun félagsins í næsta mánuði gengur eftir þá verða umsvif þess nær því sem var fyrir heimsfaraldur en verið hefur nú í sumar samkvæmt talningum Túrista.

Þannig er stefnt að því að þotur félagsins fljúgi að jafnaði 52 áætlunarferðir á sólarhring til og frá Keflavíkurflugvelli í september. Svo margar ferðir jafngilda 59 prósent af ferðafjöldanum á sama tíma árið 2019.

Til samanburðar þá var áætlun félagsins í júlí 44 prósent af því sem hafði verið á sama tíma í hittifyrra. Og það sem af er ágúst er Icelandair á hálfum afköstum.

Ef fram fer sem horfir verður ferðafjöldinn í september álíka og í þeim mánuði sem senn er á enda. Árið 2019 var ágúst hins vegar fjórðungi umsvifameiri hjá Icelandair en september.

Ferðafjöldinn er góður mælikvarði

Hér verður þó að hafa í huga að Túristi horfir aðeins til fjölda ferða í útreikningum sínum. Framboð flugfélaga er hins vegar mælt í flognum sætiskílómetrum en til að geta reiknað þá út þarf til dæmis upplýsingar hvað þotur verða nýttar í hverja ferð.

Fjöldi áætlunarferða gefur hins vegar mjög góða mynd af stöðunni. Þannig voru sætiskílómetranir hjá Icelandair í júlí rétt um 43 prósent af því sem var í hittifyrra. Einu prósentustigi minna en útreikningar Túrista fyrir þann mánuð sýndu.

Breytingar ekki útlokaðar

Spurð út í áform félagsins í september þá segir Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, að félagið hafi aukið umsvifin jafnt og þétt og þar með unnið sig í átt að eðlilegu árferði á ný.

„Við munum halda áfram á sömu braut svo lengi sem eftirspurnin stendur undir því,“ segir Ásdís.

Það er þó ekki hægt að horfa fram hjá því að Icelandair og fleiri flugfélög hafa þurft að gera töluverðar breytingar á áætlunum sínum og fella niður ferðir. Og Ásdís útilokar ekki breytingar.

„Við búumst við því að fljúga meirihluta af áætlun okkar í september en eins og undanfarin misseri gætu orðið smávægilegar breytingar í takt við stöðuna á faraldrinum og þær ferðatakmarkanir sem eru í gildi á hverjum tíma.“

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …