Samfélagsmiðlar

Ekkert nýtt í „leikkerfi“ Icelandair segir forstjóri Play

Play situr ekki eitt að einum einasta áfangastað og útlit fyrir að svo verði ekki heldur þegar félagið hefur flug til Bandaríkjanna.

Baltimore er einn þeirra áfangastaða í Bandaríkjunum en þar var Wow Air umsvifamikið.

Afkoman af áætlunarflugi Icelandair til Baltimore sumarið 2018 var ekki nægjanlega góð og því tók félagið ekki upp þráðinn á ný árið eftir.

Það eru jafnframt vísbendingar um að farþegatekjur félagsins hafi lækkað um ríflega eitt hundrað milljónir króna við það eitt að fara í samkeppni við Wow Air í borginni þetta eina sumar.

Þrátt fyrir það ætla stjórnendur Icelandair að reyna aftur næsta sumar. Ein af skýringunum á því er vafalítið boðað flug Play til Bandaríkjanna en félagið horfir til Baltimore sem áfangastaðar þar í landi.

Frá miðborg Washington DC er nefnilega álíka langt í flugvöllinn í Baltimore og það er til Washington Dulles flugvallar. En þangað hefur Icelandair flogið síðan árið 2011 á meðan Wow Air hélt til í Baltimore.

Sumarið 2018 skoraði Icelandair hins vegar Wow Air á hólm í Baltimore enda var flugfélag Skúla Mogensen orðið stórtækt þar í borg. Ferðum Icelandair til Washington svæðisins fjölgaði samtals um nærri tíund þetta sumar samkvæmt talningu Túrista.

Aftur á móti fækkaði farþegunum um borð í vélum Icelandair um ríflega fjögur þúsund eða fimm af hundraði samkvæmt tölum frá bandarískum flugmálayfirvöldum. Farþegum Wow Air fjölgaði aftur á móti eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan.

Varlega má áætla að tekjutap Icelandair af þessum samdrætti hafi numið ríflega eitt hundrað milljónum króna yfir þetta fjögurra mánaða tímabil.

Sem fyrr segir þá ætlar Icelandair að spreyta sig í Baltimore á ný næsta sumar og þar með ljóst að Play fær ekki að koma sér fyrir í næði í borginni líkt og Wow Air fékk á sínum tíma.

Taktík keppinautarins kemur þó Birgi Jónssyni, forstjóra Play, ekki á óvart.

„Við höfum engar áhyggjur af samkeppninni við það ágæta félag. Okkar módel gerir ráð fyrir hefðbundnum svörum frá þeim eins og þau svöruðu WOW og Express – ekkert nýtt í því leikkerfi. Lækka verð á staði sem við erum að fljúga á en halda verðum háum á stöðum sem þau eru ein,“ segir Birgir.

Í því samhengi má nefna að í síðustu viku boðaði Icelandair flug til Salzburg í vetur. Þangað hefur Play líka sett stefnuna en Wow Air fékk lengi að halda úti ferðunum til austurrísku borgarinnar í friði fyrir Icelandair.

Þar með er Play í samkeppni við Icelandair í flugi til allra áfangastaða en reyndar flýgur Icelandair fyrir hönd systurfélagsins Vita til Alicante og Las Palmas á Kanarí.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …