Samfélagsmiðlar

Hversu mörg sæti seldi Play í júlí?

Þota Play tekur á loft frá Stansted flugvelli í London.

Síðar í dag eða strax eftir helgi má búast við að Play birti sínar fyrstu farþegatölur. Þar verða meðal annars upplýsingar um sætanýtingu og fjölda farþega í nýliðnum mánuði.

Þessi upplýsingagjöf mun óvænt veita innsýn í farmiðasölu flugfélagsins. Hún mun nefnilega leiða í ljós hversu margir keyptu flug með félaginu í júlí og ferðuðust í þessum sama mánuði.

Skýringin á því er sú að þann 1. júlí hafði Morgunblaðið það eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Play, að búið væri að bóka um helm­ing flug­sætanna í mánuðinum.

Vissulega nefndi forstjórinn ekki nákvæma tölu eða hlutfall en ef við gefum okkur að hann hafi námundað innan skynsamlegra marka þá þýðir þetta að 11 til 13 þúsund sæti hafi verið bókuð þann 1. júlí.

Framboðið hjá Play nam nefnilega 24.960 sætum í síðasta mánuði samkvæmt talningu Túrista.

Verði fjöldi farþega í kringum sextán þúsund þá er það vísbending um að alla vega þrjú þúsund farþegar Play í júlí hafi bókað flugið með stuttum fyrirvara.

Á sama hátt kemur það ekki vel út fyrir stjórnendur Play ef farþegahópurinn hefur ekki farið nokkuð yfir þrettán þúsund.

Nú er bara að bíða og sjá hvað kemur upp úr kössunum hjá Play.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …