Það voru rétt um 64 þúsund farþegar sem fóru um innanlandsflugvellina í júlí. Það er rétt um fimm prósent færri en á sama tíma í hittifyrra. Á einum af stórum völlunum var farþegahópurinn reyndar fjölmennri núna en þá.
Fjöldinn sem fer um Egilsstaðaflugvöll heldur nefnilega áfram að fara fram úr því sem var árið fyrir heimsfaraldur eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan. Þannig var staðan líka í júní.
Gera má ráð fyrir að farþegar í innanlandsflugi hafi í júlí verið álíka margir og þeir voru sumarið 2019 og samdrátturinn í heildarfjölda skrifist á millilandaflugið. Hollensk ferðaskrifstofa í samstarfi við flugfélagið Transavia bauð nefnilega upp á vikulegar ferðir frá Akureyri til Rotterdam í hittifyrra en ekki núna.