Á fyrri helmingi þessa mánaðar fækkaði flugferðunum til og frá Keflavíkurflugvelli um nærri tíund en samdrátturinn í fjölda farþega var umtalsvert meiri.
Fyrstu fimmtán dagana í september áttu þannig 170 þúsund farþegar leið um Flugstöð Leifs Eiríkssonar en fjöldinn nam 212 þúsund á fyrri helmingi ágúst samkvæmt tölum frá Isavia. Niðursveiflan nemur fimmtungi en til samanburðar fækkaði flugferðunum, til og frá landinu, um níu prósent samkvæmt talningu Túrista.
Það má því ljóst vera að þoturnar sem fljúga til og frá landinu í dag eru ekki eins þéttsetnar og þær voru í síðasta mánuði. Þá voru að jafnaði 141 farþegi í hverri þotu en núna er talan komin niður í 125 farþega. Það er álíka fjöldi og fyrstu fimmtán dagana í júlí.
Ef takturinn verður álíka seinni hlutann í september og hann hefur var á þeim fyrri þá má gera ráð fyrir að á fjöldi erlendra ferðamanna verði á bilinu 130 til 140 þúsund í mánuðinum. Til samanburðar voru ferðamennirnir 152 þúsund í síðasta mánuði og 109 þúsund í júlí.
Sú staðreynd að vægi Icelandair hefur aukist á kostnað erlendra flugfélaga nú í september gæti þó haft neikvæð áhrif á ferðamannastrauminn. Félagið leggur til að mynda meiri áherslu á flug með Íslendinga til Alicante og Tenerife en áður. Einnig hefur tengifarþegum félagsins verið að fjölga.
Erlend félög eins og Delta, Wizz Air og SAS hafa að sama skapi dregið aðeins úr Íslandsflugi sínu í september frá því sem var í sumar.