Samfélagsmiðlar

Hætta við að gera langt hlé á Íslandsfluginu

Fjöldi svissneskra ferðamanna hér á landi yfir vetrarmánuðina þrefaldaðist þegar easyJet hóf að fljúga til Keflavíkurflugvallar frá Basel og Genf. Einu flugsamgöngurnar sem eru í boði milli Íslands og Sviss í dag eru aftur á móti ferðir Icelandair til Zurich. Farþegar á þeirri flugleið munu þó hafa úr meiru að moða innan skamms.

Stjórnendur flugfélagsins Edelweiss hafa nefnilega ákveðið að hefja flug til Íslands á ný í desember í stað þess að bíða fram á næsta sumar líkt og ætlunin var. Síðasta flug sumarvertíðar Edelweiss hér á landi í ár var á dagskrá síðastliðinn laugardag og að sögn talsmanns flugfélagsins þá stóð útgerðin undir væntingum.

Laugardaginn 18. desember verður þráðurinn því tekinn upp að nýju og flogið verður vikulega milli Íslands og Zurich fram á vorið. Hversu tíðar ferðirnar verða næsta sumar liggur ekki fyrir.

Aðdragandinn að áætlunarflugi Edelweiss til Íslands í sumar var ekki langur líkt og Túristi fjallaði um á sínum tíma. Sala á fluginu hófst þremur vikum fyrir fyrstu brottför en þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem Edelweiss flaug til Íslands á eigin vegum. Áður sá félagið einfaldlega um að ferja farþega ferðaskrifstofunnar Kontiki hingað til lands. Icelandair tók svo við þeim viðskiptum og í kjölfarið lögðust af ferðir Edelweiss til Íslands.

Niðurstaðan var engu að síður það góð að nú ætlar félagið að spreyta sig á vetrarflugi til Íslands.

Þess má geta að farþegar sem hefja ferðalagið á Íslandi geta ekki pantað miða á heimasíðu Edelweiss heldur þurfa á vef systurfélaganna Swiss eða Lufthansa. Það síðarnefnda verður sem fyrr með á boðstólum áætlunarflug til Íslands í vetur frá Frankfurt.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …