Samfélagsmiðlar

Þotueldsneytið miklu dýrara en Icelandair og Play gerðu ráð fyrir

Talsmenn flugfélaganna segjast ekki geta tjáð sig um áhrif olíuverðshækkana á reksturinn.

Forsvarsmenn Delta flugfélagsins gera ráð fyrir áframhaldandi hækkunum á þotueldsneyti næstu mánuði.

Nú þegar flugsamgöngur eru að verða eðlilegar á ný þá þurfa stjórnendur flugfélaga að takast á við nýja áskorun og það er hið ört hækkandi olíuverð. Kaup á þotueldsneyti vega nefnilega mjög þungt í rekstri flugfélaga. Hlutfallið getur hæglega verið á bilinu 20 til 25 prósent þegar olíuverðið er jafn hátt og það er í dag.

Tonn af þotueldsneyti kostar þessa dagana um 760 dollara og til marks um hækkanir síðustu vikna þá var verðið um fimmtungi lægra þegar hlutafjárútboð Play fór fram um miðjan júní.

Í kynningargöngum útboðsins var tekið fram að viðskiptaáætlun flugfélagsins tæki mið af hærra olíuverði en núverandi markaðsverði. Var því horft til þess að tonn af þotueldsneyti gæti farið upp í 660 dollara. Verðið í dag er fimmtán prósentum hærra. Til viðbótar hefur krónan veikst um 7 prósent gagnvart dollara á þessum tíma.

Munurinn er ennþá meiri þegar horft er til þeirrar spár sem sérfræðingar Icelandair kynntu í tengslum við hlutafjárútboð félagsins fyrir ári síðan. Þar var gert ráð fyrir að meðalverðið í ár yrði um 400 dollarar á tonn. Spáin sem nær til ársins 2024 og þar er meðalverðið innan við 500 dollarar á tonn allt tímabilið.

Sem fyrr segir þá er stór hluti af kostnaði flugfélaga bundinn kaupum á eldsneyti. En til að draga úr sveiflum í rekstrinum þá hefur það tíðkast hjá fjölda flugfélaga að gera samninga um kaup á eldsneyti á ákveðnu verði fram í tímann. Þannig er komið í veg fyrir að umtalsverðar verðhækkanir á olíu hafi mikil áhrif á reksturinn með stuttum fyrirvara. Wow Air var aldrei með svona varnir en Icelandair hefur hins vegar lengi haft þann háttinn á að kaupa alla vega helmingin af notkuninni langt fram í tímann.

Hluti af fjárhagslegri endurskipulagningu flugfélagsins í fyrra var að breyta þessum samningum.

Talsmenn félagsins segjast þó ekki geta rætt hvernig innkaupunum er háttað í dag né hversu mikil áhrif verðshækkanirnar hafa haft á afkomu félagsins. Skýringin er sú að félagið er í þagnabindindi fram í næstu viku þegar uppgjör félagsins, fyrir þriðja fjórðungi ársins, verður kynnt.

Hjá Play fást þau svör að ekki sé hægt að veita upplýsingar um áhrif verðhækkana á rekstur félagsins né heldur hversu þungt kaup á eldsneyti vega í rekstri Play eða hvernig innkaupum á eldsneyti er háttað.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …