Samfélagsmiðlar

Tekjurnar minnkuðu um ríflega tíund en afkoman batnaði engu að síður

Tekjur Radisson 1919 hótelsins námu að jafnaði um 28.300 krónum á hvert herbergi í júlí, ágúst og september árið 2019. Kostnaðurinn var um 11 þúsund kr. lægri.

Á þessu sama tímabili í ár voru tekjur á hvert herbergi hótelsins 25.200 kr. sem er lækkun um ríflega tíund eða 3.100 kr. frá því sem var sumarið fyrir Covid-19 faraldurinn. Rekstrarkostnaðurinn hefur hins vegar lækkað hlutfallslega ennþá meira því hann fór úr 17.200 krónum á hvert herbergi og niður í 11.700 kr. Lækkunin nemur nærri þriðjungi.

Afkoman af rekstri hótelsins var því jákvæð um 109 milljónir króna á þriðja fjórðungi ársins í ár sem er bæting um 19 milljónir frá sama tíma í hittifyrra.

Þetta er meðal þess sem lesa má út úr uppgjörum Eikar sem á hótelið við Hafnarstræti. Og þar sem fasteignafélagið er skráð á markað þá fæst góð innsýn inn í rekstur miðbæjarhótels í uppgjörum fyrirtækisins. Það ber þó að hafa má í huga að tekjur hótelsins koma ekki aðeins vegna útleigu á herbergjum því byggingunni er einnig veitingarekstur.

Stjórnendur Eikar segja í svari til Túrista að þeir geti ekki veitt nánari upplýsingar um stöðu hótelsins umfram það sem fram kemur í uppgjörum. Skýringin á því er sú að Eik er skráð í Kauphöllina sem fyrr segir.

Í uppgjöri Eikar fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2019 kemur þó fram að framkvæmdir á herbergjum hótelsins hafi haft neikvæð áhrif á afkomuna. Það kann að skýra afhverju kostnaðurinn á þriðja fjórðungi þessa árs er um þriðjungi lægri en á sama tíma árið 2019. En sem fyrr segir þá telja stjórnendur Eikar sig ekki mega skýra stöðuna nánar vegna reglna kauphallarinnar.

Fyrstu níu mánuði ársins voru rekstrartekjur Radisson 1919 282 milljónir króna sem er rétt rúmlega helmingur af því sem var á sama tímabili í hittifyrra. Afkoman var þó jákvæð um rúmlega eitt hundrað milljónir.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …