Samfélagsmiðlar

Hundruðir frá Birmingham en fá sæti seldust í Íslandsferðir frá Leeds

Stjórnendur Jet2holidays voru sagðir hafa hætt við Íslandsflug næsta sumar vegna sóttvarnaraðgerða hér á landi. Það hefur hins vegar ekki fengið staðfest frá flugfélaginu og nú í vetur hefur félagið haldið ferðunum hingað áfram.

Breska ferðaskrifstofan Jet2holidays hefur síðustu mánuði boðið upp á Íslandsferðir frá sex breskum flugvöllum en eftirspurn var mjög ólík eftir því hvaðan var flogið.

Þannig komu hingað um átta hundruð ferðamenn með Jet2holidays frá Birmingham í nóvember samkvæmt tölum frá breskum flugmálayfirvöldum. Brottfarirnar frá Birmingham voru sjö og þar með hafa að jafnaði um sex af hverjum tíu sætum í ferðunum verið skipuð farþegum.

Frá Leeds flugu þotur Jet2Holidays tvær ferðir til Keflavíkurflugvallar í nóvember en aðeins 35 manns nýttu sér þennan valkost. Níu af hverjum tíu sætum í Íslandsferðirnar frá Leeds hefur því ekki selst. Frá East Midlands komu nærri tvöfalt fleiri farþegar en þar var aðeins ein brottför á boðstólum.

Eftirspurnin í Newcastle eftir ferðalagi til Íslands í nóvember var mun betri. Þaðan komu um 270 ferðamenn þó ferðirnar hafi aðeins verið tvær. Sætanýingin því um sjötíu prósent.

Þotur á vegum Jet2holidays flugu líka til Íslands frá Manchester og London en þá í samkeppni við önnur flugfélög. Þær tölur sem Túristi hefur undir höndum gefa ekki kost á sundurliðun eftir flugfélögum. Þar með er ekki hægt að sjá hversu margir nýttu sér ferðir Jet2holidays frá þessum tveimur borgum.

Þess má geta að Viðskiptablaðið sagði frá því í haust að stjórnendur Jet2holidays hafi ákveðið að hætta við Íslandsflug næsta sumar og hermdu heimildir blaðsins að sóttvarnaraðgerðir við íslensku landamærin væru ástæðan. Talsmenn félagsins hafa ekki viljað staðfesta þetta í svörum sínum við fyrirspurnum Túrista. En eins og rakið er hér að ofan þá hefur Jet2holidays haldið flugi sínu áfram nú í byrjun vetrar og er með fleiri ferðir á dagskrá eftir áramót.

Félagið hefur þó tekið úr sölu flug til Keflavíkurflugvallar næsta sumar en þá verður að hafa í huga að eftirspurn eftir Íslandsferðum frá Bretlandi er vanalega mun meiri á veturna en á sumrin. Í eðlilegu árferði komu hingað fleiri breskir ferðamenn í febrúar en samanlagt yfir sumarmánuðina þrjá.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …