Samfélagsmiðlar

Hver farþegi Icelandair borgaði mun meira

Það verða ekki mörg flugsæti seld undir kostnaðarverði hjá Icelandair í ár segir forstjóri félagsins.

Icelandair skilaði síðast hagnaði árið 2017 en í ársbyrjun 2018 var gert ráð fyrir hagnaði það ár. Það rættist ekki meðal annars vega pressu á farmiðaverðið. Nú er verðið töluvert hærra en þá var.

Meðaltekjur Icelandair af hverjum farþega voru 26 prósentum hærri á síðasta ársfjórðungi í samanburði við sama tíma árð 2018. Þetta sýna útreikningar Túrista sem byggja á uppgjörum félagsins en þar er bæði horft til farþegatekna félagsins og svokallaðra hliðartekna. Til þeirra teljast t.d. tekjur af sölu á farangursheimildum og vali á sætum.

Það er hins vegar ekki hægt, með góðu móti, að gera samanburð við árið 2019. Það ár tekjufærðu nefnilega stjórnendur Icelandair skaðabætur frá Boeing, vegna kyrrsetningar Max þotanna, sem farþegatekjur. Það er því bara hópur starfsmanna Icelandair sem þekkir hversu háar tekjurnar voru í raun árið 2019.

Bjartsýnn á verðþróunina

Icelandair gefur ekki upp þróun meðaltekna á hvern farþega í uppgjörum sínum en á afkomufundi félagsins, síðastliðinn föstudag, spurði Túristi út í þessa verðþróun. Í svari Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, kom fram að hækkunin skrifaðist m.a. á betri sölu á Saga Class miðum núna í samanburði við árið 2018 þegar hlutfall Economy Light miða var hærra. Bogi benti jafnframt á að það væru margir hlutir sem hefðu áhrif á þessar stærðir en hann væri bjartsýnn á verðþróunina í ár, m.a. vegna undirliggjandi eftirspurnar eftir ferðalögum.

Hann ítrekaði jafnframt að ætlunin væri að gera rekstur Icelandair arðbæran á ný og það þýddi að félagið myndi ekki selja mikið af flugmiðum undir kostnaðarverði.

Í því samhengi má rifja upp að Icelandair skilaði neikvæðri afkomu árið 2018 sem stjórnendur félagsins röktu meðal annars til „ósjálfbærra fargjalda“ á markaðnum. Afkomuspá þeirra fyrir árið 2018, sem gefin var út í febrúar sama ár, gerði þó ráð fyrir vænum hagnaði.

Vægi fraktflutninga margfaldast

Sem fyrr segir þá upplýsir Icelandair ekki sérstaklega um þróun meðaltekna á hvern farþega í uppgjörum sínum en veitir í staðinn sýn á einingatekjur og einingakostnað. Báðar þessar stærðir fóru upp á við á síðasta fjórðungi í samanburði við þriðja ársfjórðung í fyrra. Það ber þó að hafa í huga að Icelandair reiknar tekjur af fraktflutningum inn í einingatekjurnar en vægi þeirra hefur aukist umtalsvert í heimsfaraldrinum. Á síðasta fjórðungi síðasta árs námu tekjur af vöruflutningum um 15 prósent af heildartekjum félagsins sem er þrefalt hærra hlutfall en allt árið 2018.

Ef frakttekjurnar eru teknar út úr myndinni og aðeins horft til farþegtekna þá hækkuðu einingatekjurnar um 11 prósent á síðasta fjórðungi síðasta árs í samanburði við sama tíma árið 2018. Sem fyrr er ekki hægt að gera samanburð við 2019 vegna skaðabótanna frá Boeing sem færðar voru sem farþegatekjur.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …