Samfélagsmiðlar

Töpuðu milljarði á mánuði

Norska lággjaldaflugfélagið Flyr hóf rekstur í lok júní í fyrra.

Það var í lok júní í fyrra sem norska lágfargjaldaflugfélagið Flyr hóf rekstur og nú í morgun birtu stjórnendur þess fyrsta ársuppgjörið. Niðurstaðan er tap upp á 437 milljónir norskra króna. Það jafngildir 6,1 milljarði íslenskra króna eða einum milljarði fyrir hvern þann mánuð sem félagið hélt úti áætlunarflugi í fyrra.

Í flota Flyr eru fimm eldri Boeing 737 þotur en markmiðið er að þær verði orðnar tólf í ágúst næstkomandi og þar af helmingurinn nýjar Boeing 737 Max flugvélar.

Hið mikla tap norsku nýliðanna er ekki alveg óvænt því félagið þurfti nú í ársbyrjun að efna til hlutafjárútboðs því sjóðir félagsins voru að tæmast. Mánaðarlegar farþegatölur félagsins hafa líka sýnt að óseldu sætin um borð eru ennþá fjölmörg. Tekjurnar hafa því ekki staðið undir væntingum.

Í kynningu sem fylgir uppgjöri Flyr í morgun eru stjórnendur félagsins bjartsýnir á framhaldið nú þegar neikvæð áhrif heimsfaraldursins fara þverrandi. Og þrátt fyrir mikinn taprekstur frá byrjun þá vilja yfirmenn Flyr meina að viðskiptamódelið hafa sannað sig. Vísa þeir meðal annars til þess hve sveigjanlegur reksturinn er en forstjórar Icelandair og Play þreytast ekki heldur á að draga fram þetta sama atriði þegar þeir ræða rekstur sinna flugfélaga.

Nýtt efni
MYND: ÓJ

Í fyrra flugu 2,2 milljónir ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli og ný hagspá Landsbankans gerir ráð fyrir 2,3 milljónum ferðamanna í ár og þeim fjölgi svo um 100 þúsund á næsta ári og aftur á því þarnæsta. Spá Ferðamálastofu er í nærri sama takti því samkvæmt henni verða ferðamennirnir í ár 2,4 milljónir í ár og 2,6 …

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …