Samfélagsmiðlar

Áhrif stríðsins minni á íslenska flugmarkaðnum

Innrás Rússa í Úkraínu hófst að morgni 24. febrúar og um leið dró verulega úr bókunum á flugi til og frá löndunum í kringum átakasvæðið. Samdrátturinn í flestum ríkjum Austur-Evrópu nam 30 til 50 prósentum fyrstu viku stríðsins í samanburði við vikuna á undan.

Á hinum Norðurlöndunum og í Mið- og Suður-Evrópu fækkaði bókunum á bilinu tíu til þrjátíu prósent samkvæmt nýrri úttekt greiningafyrirtækisins ForwardKeys

Ísland, Belgía og Serbía voru aftur á móti þau þrjú lönd þar sem samdrátturinn í bókunum mældist undir tíund í fyrstu viku stríðsátakanna. Að mati sérfræðinga ForwardKeys þá er skýringin á litlum samdrætti í Serbíu, þrátt fyrir legu landsins, sú að fyrstu daga stríðsins var flugumferðin milli Serbíu og Rússlands óvenju mikil.

Atlantshafsmarkaðurinn hélt sér betur

Bæði Icelandair og Play gera út á farþega á leið milli Evrópu og Norður-Ameríku og samkvæmt tölum ForwardKey þá dró minna úr bókunum á þeim markaði en þegar kemur að flugi innan Evrópu. Á þeim síðarnefnda fækkaði pöntunum um 23 prósent dagana 23. febrúar til 2. mars en samdrátturinn í flugmiðabókunum milli Bandaríkjanna og Evrópu var þrettán prósent.

Áhrifin eftir að aukast

Að mati Olivier Ponti, framkvæmdastjóra greininga hjá ForwardKeys, er þetta til marks um að Bandaríkjamenn tengi ekki stríðið í Úkraínu við alla Evrópu. Þeir horfi því ennþá til álfunnar sem frekar öruggs áfangastaðar segir Ponti. Hann ítrekar þó tölurnar hér að ofan nái aðeins til fyrstu viku stríðsins og áhrif þess á ferðalög eigi líklega eftir að aukast.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …