Samfélagsmiðlar

Ferðaþjónustan kemur saman að nýju

Arnheiður Jóhannsdóttir, talskona Markaðsstofa landshlutanna, skrifar.

Arnheiður Jóhannsdóttir.

Stærsti viðburður ferðaþjónustunnar á Íslandi verður haldinn nú í vikunni. Fimmtudaginn 24. mars koma hátt í þúsund manns saman á ferðakaupstefnunni Mannamót Markaðsstofa landshlutanna sem haldin er árlega. Á Mannamótum koma ferðaþjónustufyrirtæki úr öllum landshlutum saman til að kynna þjónustu sína og vörframboð fyrir fólki í  ferðaþjónustu sem staðsett eru á höfuðborgarsvæðinu. Stór þáttur í uppbyggingu ferðaþjónustunnar eftir erfiðleika síðustu tveggja ára er að vinna þétt saman í nýsköpun, vöruþróun og markaðssetningu. Þarna myndast mikill suðupottur hugmynda og verkefna, bæði á milli landshluta en einnig innan svæða. 

Mannamót var síðast haldið í janúar 2020 og má því gera ráð fyrir að í þetta sinn munum við sjá breytingar á fyrirtækjum og mannskap. Heimsfaraldur Covid-19 hefur tekið á og fyrirtæki þurft að aðlaga sig að breyttum aðstæðum og markaðsbresti. Á sumum svæðum tók innanlandsmarkaður að einhverju leyti við en á öðrum svæðum þurrkaðist ferðaþjónustan nánast út og mun taka tíma að ná fyrri stöðu. 

Framundan er ár uppbyggingar og vaxtar. Bókanir fyrir sumarið líta vel út og mikill ferðavilji er greinilegur. Ferðaþjónustan hefur núna tækifæri til endurskipulagningar og þarf að leggja mikla áherslu á að byggja upp framboð þjónustu um allt land, fá aftur til sín starfsfólk sem hvarf til annarra starfa og hefja fjárfestingar á ný. Á sama tíma eru nýjar áherslur að birtast svo sem varðandi kröfur um sjálfbærni og breytt ferðahegðun. 

Á Mannamóti gefst tækifæri til að ræða málin, skiptast á hugmyndum, efla viðskiptasambönd og kynna þjónustu eða ný verkefni. Þessi vettvangur hefur fest sig í sessi sem ein stærsta ferðakaupstefna á Íslandi og verða þar án efa miklir fagnaðarfundir við þetta tækifæri hjá samstarfsaðilum sem hafa lítið getað hist síðustu tvö árin. Endurreisn ferðaþjónustunnar er að hefjast af krafti. 

Höfundur: Arnheiður Jóhannsdóttir, talskona Markaðsstofa landshlutanna

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …