Samfélagsmiðlar

Icelandair hækkar eldsneytisálagið

Kaup á eldsneyti er stærsti kostnaðarliðurinn í rekstri flugfélaga að launum starfsmanna frátöldum.

Í byrjun vikunnar kynnti Play til sögunnar nýtt gjald sem á að vega upp á móti auknum kostnaði félagsins við kaup á þotueldsneyti. En verð á því hefur hækkað um ríflega helming frá því að félagið hóf áætlunarflug í lok júní í fyrra.

Þetta nýja eldsneytisgjald hjá Play nemur á bilinu 1.300 til 2.200 krónur þegar flogið er frá Keflavíkurflugvelli en á heimleiðinni er álagið reiknað í evrum og dollara er þá í mesta lagi um 4.500 krónur.

Hjá Icelandair hefur sérstakt eldsneytisálag lengi verið hluti af farmiðaverðinu en það hefur verið 4.600 krónur þegar flogið er til Evrópu en 8.100 kr. þegar farið er vestur um haf samkvæmt heimasíðu félagsins

Frá og með næsta föstudegi, 1. apríl, hækkar hins vegar álagið um helming og verður þá 6.900 krónur þegar flogið er til evrópskra áfangastaða og 12.300 kr. ef ferðinni er heitið til Norður-Ameríku. Þetta kemur fram í tilkynningum sem flugfélagið hefur sent ferðaskrifstofum hér heima og erlendis í dag.

Þar kemur fram að hópar sem staðfesta bókanir fyrir mánaðamótin fá ferðir sínar á áður uppgefnu verði. Hjá öðrum hækkar þá flugmiðinn um allt að fimm þúsund krónur ef ferðast á til Bandaríkjanna.

Sem fyrr segir hefur verð á þotueldsneyti hækkað mjög mikið og er í dag álíka hátt og það var árið 2014. Þá var eldsneytisgjaldið hjá Icelandair reyndar mun hærra eða 9.200 kr. í Evrópuflugi en 16.400 kr. í Ameríkuflugi.

Í byrjun árs 2016 var gjaldið svo helmingað og hefur verið óbreytt allar götur síðan. Á því verður þó breyting næsta föstudag.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …