Samfélagsmiðlar

Taka Tenerife fram yfir Mallorca

Ferðaskrifstofan Vita hefur tekið úr sölu ferðir sínar til Mallorca. Áfram verður þó hægt að fljúga héðan beint til spænsku eyjunnar.

Frá Mallorca.

Þó Mallorca hafi lengi fastur liður í dagskrá íslenskra ferðaskrifstofa þá hefur framboð á ferðum þangað verið lítið síðustu ár.

Á komandi sumri var hins vegar útlit fyrir þrjár flugferðir í viku hverri frá Keflavíkurflugvallar til Palma á Mallorca. Nú hefur ferðaskrifstofan Vita, sem er í eigu Icelandair, aftur á móti tekið sínar ferðir úr sölu.

„Við höfum fundið fyrir mun meiri áhuga á Tenerife, Krít og Alicante heldur en Mallorca í sumar. Það var orðið nær alveg uppselt til Tenerife í sumar og ekki rými í áætlun til að bæta við án þess að annað færi út. Þannig að til þess að koma til móts við markaðinn ákváðum við að bæta við sætum þangað á kostnað Mallorca,” segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Vita, spurður út í þessar breytingar.

Þráinn bætir við að þeir sem nú þegar hafa bókað ferðir til Mallorca með Vita bjóðist full endurgreiðsla á ferðinni. Fólk getur einnig valið um að ferðaskrifstofan hafi milligöngu um skipulagningu á ferð þangað eftir öðrum leiðum eða velja um ferð til annarra áfangastaða með Vita.

Stærstu keppinautar Vita, ferðaskrifstofunnar Úrval-Útsýn og Heimsferðir eru báðar með ferðir til Mallorca á boðstólum og eins ætlar Play að fljúga sínum þotum til eyjunnar vikulega í sumar.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …