Framboð á gistingu er langmest í höfuðborginni og því þarf ekki að koma á óvart að flestir þeirra sem hafa pantað sér herbergi hér á landi í sumar eiga bókað í Reykjavík. Alla vega af þeim sem hafa nýtt sér vef Booking.com.
Á eftir höfuðborgarsvæðinu eru það gististaðir í kringum Keflavíkurflugvöll og í Reykjanesbæ sem njóta mestrar hylli fyrir sumarið samkvæmt úttekt bókunarrisans fyrir Túrista. Þetta er í takt við stöðuna sem var uppi á sama tíma árið 2019 því þá voru Reykjavík og Reykjanesbæ í tveimur efstu sætunum.
Á þeim tíma var Akureyri í þriðja sæti yfir þá áfangastaði hér á landi þar sem notendur Booking.com höfðu bókað flestar gistingar yfir komandi sumar.
Núna er gististaðir í Vík og nágrenni hins vegar í þriðja sæti og Höfn í Hornafirði er í fjórða sæti líkt og fyrir þremur árum síðan. Höfuðstaður Norðurlands er aftur á móti í fimmta sætinu en var í því þriðja fyrir sumarvertíðina 2019.
Þegar kemur að þeim stöðum þar sem bókanum fyrir sumarið hefur fjölgað mest frá því sem var 2019 þá er Drangsnes í fyrsta sæti en Booking.com hefur sótt mjög inn á markaðinn fyrir leigu á orlofshúsum. Og fjöldi þess háttar gistikosta er á boðstólum á bókunarsíðunni í nágrenni við Drangsnes.