Samfélagsmiðlar

Gengið upp á við í fyrsta sinn í tvo mánuði

Virði Icelandair og Play hefur lækkað um milljarða á milli vikna síðustu mánuði.

Hlutabréfin í Icelandair hækkuðu aðeins í vikunni.

Hlutabréf í flugfélögum hafa lækkað að undanförnu og það er líka raunin hjá Icelandair. Verðmæti flugfélagsins er í dag rétt um 54 milljarðar króna en var tuttugu milljörðum meira virði þann 1. mars sl. þegar hlutafé þess var síðast aukið.

Sú útgáfa skrifaðist á nýtingu áskriftarréttinda þeirra sem tóku þátt í hlutafjárútboði Icelandair haustið 2020. Þessir fjárfestar eiga rétt á að kaupa fleiri bréf í félaginu í byrjun ágúst og þá á genginu 1,3 krónur á hlut. Í dag er gengi flugfélagsins 1,42 krónur eftir að hafa hækkað um 2,3 prósent frá lokum síðustu viku.

Þetta er fyrsta vikan í tvo mánuði sem gengi hlutabréfa í Icelandair hækkar.

Play heldur hins vegar áfram að lækka og virði félagsins er rétt um 11 milljarðar í dag. Lækkunin nemur um sex milljörðum frá hlutafjárútgáfunni þann 22. apríl sl. þegar nokkrir starfsmenn fengu nýja hluti í félaginu.

Eins og sjá má hér fyrir neðan þá var norska félagið Flyr hástökkvari vikunnar í flokki skráðra norrænna flugfélaga. Gengi félagsins er samt sem áður orðið það lágt að hætt hefur verið við boðaða hlutafjáraukningu. Þar átti gengið að vera 1,2 norska krónur á hlut en gengi er komið niður í 1,022 norskar kr.

Í því samhengi má rifja upp að eftir mánuð þarf stærsti hluthafi Icelandair, bandaríski lánasjóðurinn Bain Capital Credit, að segja til um hvort áskriftarréttindi sjóðsins verði nýtt. Þar gefst Bain Capital færi á að bæta við sig þriggja prósent hlut í Icelandair á genginu 1,64 krónur á hlut. Það er um fimmtán prósent hærra verð en fjárfestar þurfa að borga fyrir hlutabréf í Icelandair á markaði. Ef Bain Capital nýtir sér þessi réttindi fær Icelandair inn ríflega tvo milljarða króna í nýtt hlutafé. Annars ekki.

Ef gengi hlutabréfanna sígur áfram næstu mánuðinn þá gæti útgáfa á áskriftarréttindum til almennra hlutahafa líka verið í hættu. En þar er miðað við 1,3 krónur á hlut líkt og fram kemur hér að ofan.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …