Samfélagsmiðlar

Íslensku flugfélögin aftur með bróðurpartinn

Hlutdeild íslensku flugfélagana á Keflavíkurflugvelli er há þessa dagana en þó lægri en þegar Wow Air var á mesti siglingu. Það munar þó ekki mjög miklu.

Vörumerki Icelandair og Play eru mest áberandi á skjám Leifsstöðvar.

Sumarið 2019 jókst vægi erlendra flugfélaga á Keflavíkurflugvelli enda var Wow Air ekki lengur í loftinu. Um leið fór hlutdeild Icelandair upp í 69 prósent eftir að hafa verið rétt um 45 prósent í júní 2018. Næstu tvær sumarvertíðir lituðust svo af heimsfaraldrinum en í nýliðnum júní var ástandið nærri eðlilegt á ný.

Þá stóð Icelandair fyrir 59 af hverjum eitt hundrað áætlunarferðum til og frá Keflavíkurflugvelli. Hlutdeild Play var fjórtán prósent og íslensku félögin því samtals með 73 prósent af umferðinni um flugvöllinn.

Til samanburðar voru Icelandair og Wow Air samanlagt með 77 prósent af ferðunum í júní 2018 en segja má að stjórnendur félaganna hafi farið fram af meira kappi en forsjá það sumar. Þegar leið á vertíðina sagði forstjóri Icelandair starfi sínu lausu og Wow Air lagði spilin á borðið í dýrkeyptri skuldabréfaútgáfu.

Þessa dagana er vægi íslenskra flugfélaga á Keflavíkurflugvelli aðeins lægra sem fyrr en gæti nálgast áttatíu prósentin á ný næsta sumar miðað við stækkunaráform Play. Eins á Icelandair nokkuð í að ná fyrri stærð og því ekki útlit fyrir annað en að íslensk flugfélög verðir áfram með bróðurpartinn af flugsamgöngunum til og frá landinu.

Af erlendu flugfélögunum þá var Wizz Air umsvifamest í Íslandsflugi í júní og var félagið með um sex prósent af áætlunarferðunum frá Keflavíkurflugvelli. Þar á eftir kom Delta með þrjú prósent og svo Easyjet og SAS með um tvö prósent hlutdeild.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …