Samfélagsmiðlar

Bandaríski lánasjóðurinn gnæfir yfir íslensku lífeyrissjóðunum

Íslenskir lífeyrissjóðir eru mun meira áberandi í hluthafahópi Icelandair en Play. Bandarískur lánasjóður á þó álíka stóran hlut og íslensku sjóðirnir samtals.

Eftir hlutafjáraukningu í Icelandair síðastliðið sumar þá eignaðist Bain Capital Credit 16,6 prósent hlut í flugfélaginu. Hlutafé Icelandair var í kjölfarið aukið enn á ný og hlutur bandaríska lánasjóðsins var komið niður í tæp fimmtán prósent.

Nú í sumarlok fóru svo fram tvær hlutafjáraukningar í viðbót. Fyrst þegar Bain Capital nýtti áskriftarréttindi sín og svo þegar fjárfestar, sem tóku þátt í hlutafjárútboði flugfélagsins haustið 2020, nýttu sinn rétt. Þar með taldir framkvæmdastjórar fyrirtækisins.

Nýr hluthafalisti Icelandair er því nokkuð frábrugðinn þeim sem birtur var fyrir mánuði síðan.

Núna er hlutur Bain Capital Credit til að mynda kominn upp í 17,2 prósent en næststærsti hluthafinn, lífeyrirssjóðurinn Brú, er aðeins með 4,06 prósent. Sjö aðrir íslenskir lífeyrissjóðir komast á lista yfir 15 stærstu hluthafana og eiga þeir samtals 16,66 prósent hlut sem er aðeins minna en Bain Capital fer fyrir eitt og sér.

Bandaríski sjóðurinn er reyndar ekki skráður fyrir fjárfestingunni í Icelandair heldur írsk eignhaldsfélag sem kallast Blue Issuer DAC. Það var stofnað var tveimur mánuðum áður en fjárfestingin í Icelandair var gerð opinber í fyrra og þá sagði talsmaður sjóðsins, í svari til Túrista, að teymið sem haldi utan um fjárfestinguna á Íslandi haldi til í Norður-Ameríku og það væri ekki óalgengt að eignarhald fjárfestinga sjóðsins sé skráð annars staðar.

Sem fyrr segir eru átta íslenskir lífeyrissjóðir meðal fimmtán stærstu hluthafa Icelandair en hjá Play komast aðeins þrír lífeyrissjóðir á lista. Hjá báðum flugfélögunum eru íslenskir bankar skráðir fyrir stórum hlut en þar munu helst vera á ferðinni fjárfestingar í eigu viðskiptavina bankanna.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …