Samfélagsmiðlar

Geta hafið sókn í Ameríkuflugi frá Bretlandi

Stjórnendur Icelandair og Play þurfa líklega meir og meir að horfa til verðlagningar Norse flugfélagsins.

Frá og með vorinu stefnir Norse Atlantic á aukin umsvif í flugi milli Bretlands og Bandaríkjanna.

Breska flugmálayfirvöld hafa veitt norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic flugrekstrarleyfi og þar með getur félagið stóraukið umsvif sín í áætlunarflugi yfir Atlantshafið frá Gatwick í London. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í morgun.

Í dag fljúga þotur Norse daglega frá Gatwick flugvelli í London til JFK flugvallar í New York en sú útgerð byggir á norsku flugrekstrarleyfi. Nú ætla stjórnendur Norse aftur á móti að koma upp starfsstöð í bresku höfuðborginni og auka framboð á Ameríkuflugi þaðan. Félagið hyggst ráða bæði breskar og bandarískar áhafnir til að sinna útgerðinni.

Hversu margir áfangastaðirnir vestanhafs verða liggur ekki fyrir en forstjóri Norse boðar aukin umsvif frá og með næsta vori. Félagið er í dag með fimmtán Boeing Dreamliner þotur sem áður tilheyrðu Norwegian. Það félag einbeitir sér hins vegar eingöngu að flugi innan Evrópu í dag og Norse er því að fylla það skarð sem Norwegian skildi eftir sig, til að mynda á Gatwick flugvelli en þaðan bauð félagið upp á tíðar ferðir til fjölda borga í Bandaríkjunum og þá oft í samkeppni við Icelandair og Wow Air. Og það er engin launung að útgerð Norwegian setti verulega pressu á fargjöld íslensku flugfélaganna.

Og nú gætu stjórnendur Icelandair og Play þurft að horfa meira og meira til verðlagningar Norse því það félag býður upp á beint flug yfir Atlantshafið á meðan farþegar íslensku flugfélaganna þurfa að millilenda á Keflavíkurflugvelli. Ferðalagið verður því flóknara og neytendur þurfa því meðal annars að sjá fjárhagslegan ávinning í því að fara lengri leiðina.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …