Samfélagsmiðlar

Þotur Icelandair þéttsetnari

Hlutfall tengifarþega eykst milli mánaða er nokkru lægra en var á þeim árum sem best gekk.

160 sæta Boeing Max þotur eru að verða uppistaðan í flota Icelandair.

Ellefu þeim átján þotum Icelandair sem lentu á Keflavíkurflugvelli í morgunsárið voru af gerðinni Boeing Max 8. Í þeim eru 160 sæti en í gömlu Boeing 757 þotunum, sem voru uppistaðan í flota félagsins, eru sætin 184. Það komast því 15 prósent fleiri farþegar í gömlu vélarnar en þær nýju sem skýrir meðal annars hærri sætanýtingu hjá Icelandair nú en áður.

Í nýliðnum ágúst var nýtingin 89 prósent en 83 prósent á sama tíma árið 2019. Nýtingin var aftur á móti 88 prósent í ágúst 2017 en það ár skilaði Icelandair síðast hagnaði. Þá nýttu 568 þúsund farþegar sér ferðir Icelandair en núna voru þeir 514 þúsund. Í samanburði við sama tíma í fyrra er batinn mikill því farþegahópurinn var tvöfalt fjölmennari að þessu sinni.

Hlutfall tengifarþega hækkaði í nýliðnum ágúst frá því sem var í júlí eða úr 43 prósentum í 45 prósent. Vægi þessa hóps, sem aðeins millilendir á Keflavíkurflugvelli, var 58 prósent á þriðja ársfjórðungi árið 2017. Á þeim tíma gaf Icelandair ekki upp hvernig skiptingin var milli farþegahópi í hverjum mánuði heldur aðeins ársfjórðungslega. Úr þessar upplýsingagjöf var bætt sumarið 2019 eftir fall Wow Air.

„Sumarið hefur gengið vel hjá Icelandair og í heild hefur félagið flutt um 1,4 milljón farþega í júní, júlí og ágúst, álíka marga og allt árið 2021. Hlutfall tengifarþega er einnig sífellt á uppleið sem er til marks um aukið jafnvægi í leiðakerfinu. Starfsfólk félagsins hefur staðið sig ótrúlega vel í þessari uppbyggingu og veitt framúrskarandi þjónustu, þrátt fyrir fjölda áskorana sem komið hafa upp undanfarna mánuði vegna afleiðinga heimsfaraldursins og innrásar Rússlands í Úkraínu,“ skrifar Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningu.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …