Samfélagsmiðlar

Umferðin ögn meiri en 2019 en töluvert frá metárinu 2018

Svona kom ágúst út í samanburði við sama mánuð árin fyrir heimsfaraldur.

Icelandair og Play standa undir langstærstum hluta umferðarinnar um Keflavíkurflugvöll.

Það voru að jafnaði farnar 82 áætlunarferðir á dag frá Keflavíkurflugvelli í ágúst eða einni fleiri en í sama mánuði árið 2019. Þá voru fimm mánuðir liðnir frá falli Wow Air og samdrátturinn í flugi til og frá landinu því umtalsverður.

Í ágúst 2018, þegar Wow Air var á fleygiferð, voru áætlunarferðirnar að meðaltali 103 á dag samkvæmt ferðagögnum Túrista. Umferðin í nýliðnum mánuði var því um fimmtungi minni en metárin 2018 og 2017.

Þá líkt og nú eru það Icelandair er sem umsvifamesta flugfélagið. Í nýliðnum ágúst stóð Icelandair fyrir sex af hverjum tíu áætlunarferðum en hlutdeild félagsins var rétt 44 prósent í ágúst 2018. Þá var Wow Air með 31 prósent af ferðunum. Saman stóðu félögin tvö því fyrir þremur af hverjum fjórum flugferðum frá Keflavíkurflugvelli. Það er nærri sama vægi Icelandair og Play er í dag eins og sjá má hér fyrir neðan en í takt við aukin umsvif félaganna tveggja þá hefur hlutdeild erlendu félaganna dregist saman frá því sem var í ársbyrjun.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …