Samfélagsmiðlar

Þarna var Skúli varkárari en stjórnendur Play

Það er töluverður munur á umsvifum Play í dag og því sem Wow Air gerði haustið 2015.

Rekstur Play í ár á alla vega tvennt sameiginlegt með umsvifum Wow Air árið 2015 – flugflotinn er jafnstór og bæði félög tóku fyrstu skrefin í Bandaríkjunum. Play ætlar sér hins vegar stærri hluti í vetur en lagt var upp með hjá Wow Air fyrir sjö árum síðan. En 2015 var annað árið af tveimur sem flugfélagið skilaði hagnaði.

Í flugferðum talið voru umsvif Play á fyrri helming þessa árs álíka og hjá Wow Air á sama tímabili fyrir sjö árum síðan. Þá flugu þotur þess síðarnefnda rétt rúmlega 900 ferðir frá Keflavíkurflugvelli en hjá Play voru þær 5 prósent færri. Munar þar miklu um hægari gang í janúar og febrúar í ár sem skrifast á neikvæð áhrif ómíkrón afbrigðis kórónaveirunnar.

Í mars síðastliðnum má segja að Play hafi tekið fram úr 2015 útgáfunni af Wow Air og síðan þá hefur bilið breikkað eins og sjá má grafinu hér fyrir neðan. Munurinn í nýliðnum september var umtalsverður.

Þá flugu þotur Play 308 ferðir frá Keflavíkurflugvelli til nítján áfangastaða en á dagskrá Wow air, í september 2015, voru 220 ferðir til þrettán borga. Bilið næstu mánuði verður álíka mikið.

Upphafið að endinum

Óhætt er að segja að rekstur Wow Air hafi gengið vel árið 2015 því félagið hagnaðist um 1,1 milljarð króna. Olíuverð var á þessum tíma um helmingi lægra en það er í dag, óvissa í efnahagsmálum heimsins minni og það var ekkert stríð í Evrópu. Rekstrarumhverfið því sannarlega hagstæðara en í dag.

Og við þessar góðu aðstæður blés Skúli Mogensen í herlúðra. Í nóvember 2015 var nefnilega tilkynnt að Wow Air hefði tekið á leigu á þrjár breiðþotur sem nýttar yrðu í tíðar ferðir til bæði San Francisco og Los Angeles. Áætlunarflugið til Kaliforníu hófst vorið eftir.

Síðar viðurkenndi Skúli þó að með þessum breytingum hefði hann farið út af sporinu. Félagið hefði átt að halda sama takti og áður.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …