Samfélagsmiðlar

Vægi tengifarþega í sitthvora áttina hjá íslensku félögunum

Rekstur Keflavíkurflugvallar, Icelandair og Play byggir að miklu á því að Leifsstöð verði vinsæl skiptistöð fyrir þá sem eru á leið milli Norður-Ameríku og Evrópu.

Tíðar ferðir Icelandair og Play til stórborga byggja á að margir nýtir ferðirnar til að fljúga alla leið yfir Norður-Atlantshafið.

Farþegar á Keflavíkurflugvelli geta valið úr nokkrum ferðum á dag til fjölda borga bæði í Evrópu og Norður-Ameríku. Þetta mikla framboð skrifast ekki aðeins á útþrá Íslendinga eða straum ferðamanna til Íslands heldur þá staðreynd að rekstur Icelandair og Play byggir að miklu leyti á tengifarþegum, fólki sem ferðast milli heimsálfa en millilendir hér á landi.

Hlutfall þessa farþegahóps var ríflega fjörutíu prósent á Keflavíkurflugvelli fyrir heimsfaraldur. Hjá Icelandair var vægið ennþá hærra á árunum sem félagið var rekið með hagnaði, fór til að mynda upp í 58 prósent á þriðja ársfjórðungi árið 2017.

Það sem af er þessu ári hafa tengifarþegarnir í Leifsstöð ekki verið eins margir og áður eða um þrjátíu prósent af heildinni síðustu þrjá mánuði samkvæmt tölum Isavia.

Hjá Icelandair hefur hlutfallið farið uppá við síðustu mánuði, úr 43 prósentum í júlí og upp í 48 prósent í nýliðnum september samkvæmt því sem sjá má í mánaðarlegum farþegatölum félagsins.

Play upplýsir ekki um skiptingu farþegahópsins eftir mánuðum en út frá tölum Isavia og Icelandair má reikna út hver þróunin er þar á bæ. Og miðað við þá útreikninga þá hefur hlutfall tengifarþega hjá Play farið niður á við og endaði í 27 prósentum í september. Vægi tengifarþega var hins vegar hærra mánuðina tvo á undan eins og sjá má hér fyrir neðan.

Spurð út í þessa þróun þá segir Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri Play, að upplýsingar um skiptingu farþegahópsins séu ekki veittar mánaðarlega en verði mögulega birtar í tengslum við næsta uppgjör félagsins.

Í september flaug Play daglega til þriggja bandarískra borga og stóðu ferðirnar þangað undir 29 prósent af flugáætlun félagsins. Hjá Icelandair var vægi ferða til Bandaríkjanna og Kanada hærra eða 35 prósent samkvæmt ferðagögnum Túrista.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …