Samfélagsmiðlar

Forstjórinn feginn að hafa keypt þoturnar áður en verðið hækkaði

Í flota Wizz Air eru eingöngu Airbus þotur.

Á Keflavíkurflugvelli standa Icelandair og Play undir bróðurparti umferðarinnar en þar eftir kemur hið ungverska Wizz Air. Stjórnendur þess nýttu tímann í heimsfaraldrinum til að opna nýjar starfsstöðvar og kaupa nýjar Airbus þotur. Þar á meðal hátt í þrjátíu eintök af A321 XLR sem eru hefðbundnar farþegavélar með drægni á við breiðþotur.

Þær eiga til dæmis að drífa frá Keflavíkurflugvelli og alla leið til Dubaí og syðsta hluta Kaliforníu og gætu hentað Icelandair vel eins og rætt hefur verið.

Verðið á þotunum hefur þó hækkað umtalsvert að undanförnu ef marka má orð József Váradi, forstjóra Wizz Air. Í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í morgun, vegna nýs uppgjörs, tekur forstjórinn nefnilega sérstaklega fram að félagið hafi tryggt sér góð kjör á nýju þotunum áður en verðlagið fór á flug.

Til viðbótar við verðbólguna hafa biðlistar eftir nýju þotum lengst enda hafa stjórnendur flugfélaga verið duglegir við að kaupa flugvélar síðustu misseri. Icelandair hefur til að mynda tryggt sér fleiri eintök af Boeing Max en er líka í viðræðum við Airbus um möguleg flugvélakaup enda þarf félagið á langdrægari þotum að halda sem fyrr segir.

En þrátt fyrir að flugvélaviðskiptin hafi verið vel lukkuð að mati forstjóra Wizz Air þá hefur afkoma flugfélagsins ekki verið góð að undanförnu. Í morgun birti félagið uppgjör sem nær yfir tímabilið mars til september og niðurstaðan var tap upp á 384 milljónir evra eða 55 milljarða króna á gengi dagsins.

Langstærsti hluti tapsins skrifast á þá staðreynd að Wizz Air borgar fyrir leigu á flugvélum í bandaríkjadollar á sama tíma og tekurnar eru að mestu í evrum. Það samband kemur ekki vel út núna þegar dollarinn er mjög sterkur.

Af þeim sökum hafa stjórnendur Wizz Air unnið að því að færa leigusamningana yfir í evrur og í þeim viðræðum vinnur það með flugfélaginu að einn stærsti hluthafinn á nærri allar þoturnar. Þar er á ferðinni Bill Franke, sá sami og sýndi fjárfestingu í Wow Air áhuga eftir að slitnaði upp úr viðræðum Icelandair og Skúla Mogensen í árslok 2018. Ekkert varð þó af viðskiptunum eins og við þekkjum öll.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …