Samfélagsmiðlar

Ný gleraugnaverslun í Leifsstöð

Frá Leifsstöð.

Íslenska gleraugnaverslunin Eyesland átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um rekstur gleraugnaverslunar á Keflavíkurflugvelli. Fyrirtækið mun því opna verslun í flugstöðinni á fyrsta ársfjórðungi næsta árs að því segir í tilkynningu.

Þar segir að opnað hafi verið fyrir útboð fyrir gleraugnaverslun fyrr á þessu ári og tvö fyrirtæki sendu inn gögn til þátttöku. Við mat á tilboðunum var horft til tveggja meginþátta, tæknilegs og fjárhagslegs. Sérfræðiteymi eru á bak við hvorn matsflokk en meðal þess sem hefur áhrif á matið eru vöruúrval, gæði, þjónusta og verð, hönnun, sjálfbærni og markaðssetning.

„Eyesland var stofnað árið 2010 með það að leiðarljósi að bjóða upp á vandaðar vörur á góðu verði. Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið og dafnað og við erum gífurlega spennt fyrir komandi tímum í nýju verkefni. Við höfum ávallt lagt áherslu á faglega og persónulega þjónustu og munum halda því áfram í nýrri verslun okkar á Keflavíkurflugvelli. Við hlökkum til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað á vellinum,“ segir Sigrún Andersen, hjá Eyesland.  

„Við bjóðum Eyesland velkomin í flugstöðina og hlökkum til samstarfsins. Á sama tíma viljum við þakka Optical Studio fyrir gott samstarf til fjölda ára og óskum þeim velfarnaðar. Þau voru brautryðjendur á þessum markaði í flugstöðinni og hafa veitt góða þjónustu í gegnum tíðina. Lögum samkvæmt, bjóðum við út verslunar- og veitingarými flugstöðvarinnar. Við höfum að leiðarljósi að útboðsferlið sé gagnsætt og úrvinnslan skýr. Enda okkar markmið að allir bjóðendur hafi jafna möguleika á að vinna útboðin, hvort sem þeir eru vanir útboðum eða ekki,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslunar og veitinga hjá Isavia. 

Í tilkynningu er tekið fram að Isavia beri að bjóða út verslunar- og veitingarými á Keflavíkurflugvelli og er útboðunum ætlað að tryggja samkeppni til hagsbóta fyrir neytendur og rekstraraðila.

Nýtt efni

Þeir fjárfestar sem tóku þátt í hlutafjáraukningu Play hafa nú fengið hluti sína afhenta og þar með ríflega tvöfaldaðist fjöldi útgefinna hluta í flugfélaginu við opnun Kauphallarinnar í morgun. Um leið fór markaðsvirði félagsins úr 3,9 milljörðum í 8,5 milljarða. Í hlutafjárútboðinu var hver hlutur seldur á 4,5 krónur og markaðsgengi gömlu bréfanna var það …

MYND: ÓJ

Í fyrra flugu 2,2 milljónir ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli og ný hagspá Landsbankans gerir ráð fyrir 2,3 milljónum ferðamanna í ár og þeim fjölgi svo um 100 þúsund á næsta ári og aftur á því þarnæsta. Spá Ferðamálastofu er í nærri sama takti því samkvæmt henni verða ferðamennirnir í ár 2,4 milljónir í ár og 2,6 …

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …