Það eru sjö norræn flugfélög skráð á hlutabréfamarkað og í nýliðinni viku hækkaði gengi hlutabréfa í tveimur þeirra, Norwegian og Play.
Þar með breikkar bilið á milli Norwegian og annarra flugfélaga töluvert. Norska lágfargjaldaflugfélagið er nú virði 126 milljarða króna eða um 34 milljörðum kr. meira en hlutabréfin í Finnair eru virði nú í byrjun nýrrar viku. Icelandair er svo þriðja verðmætasta norræna flugfélagið eins og sjá má á neðri myndinni.
Þess ber að geta að samþykktar hlutafjárhækkanir í Play og Norse hafa ekki ennþá verið skráðar á markað en þegar það verður gert þá mun markaðsvirði félaganna tveggja hækka umtalsvert að öllu óbreyttu.