Samfélagsmiðlar

Náttúran kallar

68 prósent ferðamanna segja að Íslandsferðin hafi farið fram úr væntingum og helmingur segir ferðalagið meira en peninganna virði. Mest er kvartað undan mannmergð á ferðamannastöðum .

Ferðafólk í Sjávarborg í Stykkishólmi.

Níu af hverjum tíu ferðamönnum segja náttúruna vera helstu ástæðuna fyrir ferðalaginu til Íslands og ríflega helmingur fer ofan í „náttúrubað“ í ferðinni. Þetta er meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum nýrrar könnunar á ferðalögum útlendinga um Ísland frá maí og fram í desember í fyrra.

Meðalaldur ferðamanna á þessu tímabili var 40 ár og helmingur hópsins segir tekjur sínar vera yfir meðallagi í sínu heimalandi. Níu prósent svarenda segjast vera lágtekjufólk.

Niðurstöður könnunarinnar sýna líka að áfram er bílaleigubíllinn þarfasti þjónn túristans á Íslandi. Sex af hverjum tíu leigja sér bíl hér á landi en aðeins þrír af hverjum 100 ferðamönnum nýttu sér almenningssamgöngur.

Almennt eru útlendingarnir ánægðir með dvöl sína á landinu því 68 prósent þeirra sögðu ferðina hafa farið fram úr væntingum og 49 prósent telja hana hafa verið peninginna virði.

Í heildina flugu um 1,7 milljón erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli en sú talning hefur lengi verið notuð til að leggja mat á fjölda ferðamanna hér á landi. Langflestir voru bandarískir og þó framboð á Íslandsflugi sé mest frá austurströnd Bandaríkjanna þá kemur fólkið víða að. Hátt flutfall bandarísku túristanna hér á landi á til að mynda heima í vestur- og suðurhluta Bandaríkjanna.

Bresku og þýsku ferðamennirnir koma líka alls staðar að en þeir frönsku búa flestir nálægt þeim flugvöllum sem hægt er að komast beint frá til Keflavíkurflugvallar. Framboð á Íslandsflugi frá Frakklandi hefur nærri einskorðast við París en svo er líka þónokkuð um ferðir frá Genfarflugvelli sem er á landamærum Sviss og Frakklands. Tilraunir Icelandair til að halda úti áætlunarflugi frá Nice gæti lokkað hingað fleiri Frakka sem búa við Miðjarðarhafið.

Þau sem ferðuðust til Íslands frá maí til desember í fyrra stoppuðu að jafnaði í 7,6 nætur og flestir gista á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Aftur á móti gefur fólk sér styttri tíma í Vestur- og Austurland því þar er dvalartíminn innan við tvær nætur eins og sjá má hér fyrir neðan.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …