Samfélagsmiðlar

Bannað að fljúga ef hægt er að taka lest

Frakkar hafa bannað innanlandsflug ef í boði eru lestarferðir á sömu leið. Miðað er við að lestarferðin megi taka allt að tvær og hálfa klukkustund. Þetta er liður í baráttunni við að draga úr kolefnislosun frá flugi.

Þessar takmarkanir á innanlandsflugi í Frakklandi voru raunar lögfestar 2021 en nokkur flugfélög höfðu beint erindi til Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að kannað yrði lögmæti þessarar þvingunar og héldu áfram að fljúga. Air France dró úr innanlandsflugi 2021 en fékk í staðinn stuðning vegna heimsfaraldursins. Öðrum félögum var ekki heimilað að fylla það skarð sem Air France skildi eftir á innanlandsmarkaðnum á sama tíma.

Framvegis skerðast möguleikar fólks á innanlandsflugi frá París til borga eins og Nantes, Lyon og Bordeaux en tengiflug verður heimilt. Reglan um að ef í boði er tveggja og hálfs stundar lestarferð þá megi ekki fljúga er gagnrýnd harðlega – ekki síst vegna þess að þar með nær hún ekki til ferða frá París til Miðjarðarhafsborga eins og Marseille. Það tekur hraðlestina nefnilega rétt tæpar þrjár stundir að fara þessa leið þannig að heimilt er að starfrækja áætlunarflug. 

Hraðlest kemur á stöðina í Lyon – MYND: Unsplash/Julien Rocheblave

Í lögunum er tekið fram að skilyrði fyrir því að fella niður flug á tiltekinni leið er að lestarsamgöngur séu tíðar og góðar. Fólk verður að geta ferðast fram og til baka sama dag með átta stunda millibili. Þá verður að vera hægt að sinna öllum þeim fjölda sem þarf að ferðast á viðkomandi leið. Annars má fljúga. 

Umhverfisssamtök gagnrýndu þessa ákvörðun 2021 vegna þess hversu skammt hún náði. Þau hafa viljað setja enn meiri takmarkanir á flugferðir. Þingmenn Græningja hafa viljað setja algjört bann við flugi einkaþota. Ríkisstjórnin hefur boðað hærri loftslagsskatt á flug á næsta ári. 

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …