Þýska viðskiptaráðið í Kína kannaði afstöðu aðildarfélaga sinna gagnvart starfsemi þeirra í landinu. Þá kom í ljós að meira en tvöfalt fleiri en áður eru að yfirgefa landið eða hafa hugleitt það, eða 9 prósent á móti 4 prósentum árið 2020. Könnunin var gerð í október og náði til 566 fyrirtækja, 2 prósent sögðust vera að selja starfsemina en 7 prósent sögðust íhuga þann möguleika.
Meðal þess sem nefnt er til skýringar er sívaxandi samkeppni frá innlendum fyrirtækjum, ójafn markaðsaðgangur, efnahagslægð og heimspólitískur óstöðugleiki. Yfir 40 prósent þýsku fyrirtækjanna í Kína hafa gripið til ýmissa aðgerða til að draga úr rekstraráhættu sinni, m.a. með því að búa til sínar eigin aðfangakeðjur.
Fleiri vestræn fyrirtæki eru auðvitað í svipaðri stöðu – ekki síst í ljósi herskárrar stefnu Kínastjórnar gagnvart Tævan, hernaðaruppbyggingar í Suður-Kínahafi og hörðum aðgerðum í efnahagsmálum innanlands. Efnahagsbatinn sem vænst var eftir lok heimsfaraldursins hefur orðið hægari en margir væntu.
Fulltrúar flestu þýsku fyrirtækjanna í könnuninni telja að frekari efnahagssamdráttur sé yfirvofandi í Kína, sem þó verði aðeins tímabundinn, og búast megi við viðsnúningi eftir eitt til þrjú ár. Og enn hefur rúmur helmingur þýsku fyrirtækjanna sem starfa í Kína fullan hug á að fjárfesta meira í landinu, samkvæmt upplýsingum Reuters-fréttastofunnar.