Samfélagsmiðlar

Enn eitt undratækið?

Xiaomi SU7 - MYND: Xiaomi

Xiaomi er hraðvaxta hátæknifyrirtæki í Beijing í Kína, stofnað fyrir 14 árum af frumkvöðlinum og milljarðamæringnum Lei Jun og félögum hans. Á síðasta ári var fyrirtækið í þriðja sæti á lista þeirra sem seldu flesta farsímana – næst á eftir Samsung og Apple. Xiaomi framleiðir og selur margskonar annan háþróaðan tæknibúnað og neytendavörur en samdráttur á farsímamarkaði heimsins leiðir fyrirtæki út á lendur orkuskipta í samgöngum. Fyrsta farartækið sem lítur dagsins ljós hjá Lei Jun og félögum er Xiaomi SU7.

Lei Jun var í 20. sæti yfir ríkustu Kínverjana 2023 og í 190. sæti yfir þá ríkustu í heimi – MYND: X – Lei Jun

Fyrir þremur árum greindi Xiaomi frá því að fyrirtækið hefði fjárfest í rafbílaframleiðslu fyrir 10 milljarða dollara og undir lok síðasta árs var hulunni svo svipt af Xiaomi SU7. Um leið lýsti Lei Jun þeim áformum sínum að gera Xiaomi að fimmta stærsta bílaframleiðanda í heimi.

Nú í vikunni skýrist hvað SU7 mun kosta, bíllinn sem Lei Jun lýsir sem þeim „fallegasta, liprasta og tæknilegasta“ sem kostar innan við 70 þúsund dollara (9,3 milljónir íslenskra króna), og nú verður byrjað að taka á móti pöntunum. Lei Jun segir Xiaomi búa yfir tækni sem skilað geti betri vinnslu en Tesla og Porsche.

Xiaomi SU7 í sýningarsal – MYND: Wikipedia

Fréttir og myndir hafa birst af áhugasömu fólki þyrpast í 76 sýningarsali Xiaomi í 29 borgum í Kína til að dást að hafbláum SU7 með sínar bogadregnu línur sem minnka eiga viðnám. Hönnun hefur verið helsti styrkur Xiaomi. Nú er sjá hvernig tekist hefur til með fyrsta rafbíl fyrirtækisins, sem framleiddur verður í tveimur útgáfum, með að sögn 668 og allt að 800 km drægni. Verksmiðjan í Beijing getur framleitt um 200 þúsund bíla á ári. 

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …