Samfélagsmiðlar

Fór yfir þúsund kílómetra á einni hleðslu í brennheitri eyðimörkinni

MYND: Mercedes-Benz

Þýski bílaframleiðandinn Mercedes-Benz hefur greint frá því að rafbílnum Vision EQXX hafi á dögunum verið ekið rúmlega 1.000 kílómetra leið frá Riyadh til Dúbæ á einni hleðslu. Meðaleyðslan var 7.4 kílóvattstundir á 100 km. leið. Þetta samsvarar því að bensínbíll eyddi um 0.9 lítrum á 100 km. Ökuleið Vision EQXX lá að sögn framleiðandans um arabísku eyðimörkina og í gegnum fjölfarin hverfi. Lofthiti var allt að 34 gráður.

Markus Schäfer, yfirmaður tæknimála og fulltrúi í framkvæmdastjórn Mercedes-Benz, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu að með þessari góða orkunýtingu Vision EQXX, 7.4 kílóvattstundir/100km., hafi fengist mikilvægar upplýsingar sem nýtist við frekari þróun raftækni í bílum. Öll kerfi hafi virkað sem skyldi þrátt fyrir hita og eyðimerkursand.

„Enn einn vitnisburðurinn um það að rafbílaakstur er sniðinn fyrir allan heiminn,“ segir Schäfer.

Akstursleiðin, tíminn og eyðslan – MYND: Mercedes-Benz

Í þessum tilraunaakstri Vision EQXX á Arabíuskaganum lá leiðin frá Ryadh í Sádi-Arabíu um 1.010 km leið til Dúbæ í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Aksturinn tók 14 klukkustundir og 42 mínútur. Haldið var frá Ryadh með fulla hleðslu kl. 4.15 árdegis og þegar bíllinn kom til Dúbæ 19.57 síðdegis var enn 309 km. hleðsla á bílnum. Meðal þess sem verið var að kanna var virkni sólarrafhlaðna á þaki bílsins en orka frá þeim er nýtt til að knýja loftkælingu og annan búnað við þessar erfiðu aðstæður undir brennheitri eyðimerkursólinni. 

Komið til Dúbæ að kvöldi – MYND: Mercedes-Benz

Það hefur tvisvar áður tekist að aka Vision ECXX yfir 1.000 km leið á einni hleðslu: Frá Þýskalandi yfir Alpana, um Ítalíu að Miðjarðarhafsströnd Frakklands – og einnig frá Stuttgart til Silverstone á Englandi. Nú átti að reyna að getu þessa raflúxusbíls Mercedes-Benz í miklum hita og eru fulltrúar framleiðandans ánægðir.

Forvitnilegt væri að sjá hvernig þessi bíll sem kynntur var til sögunnar 2022 stæði sig í veðri eins og nú er á Íslandi. 

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …