Samfélagsmiðlar

WOW nýtir eldsneytið betur en Icelandair

Samanburður á olíunotkun flugfélaga leiðir í ljós að aldur flugflotans ræður ekki bara eyðslunni. Stór viðskiptafarrými valda tölurverðri sóun.

Þoturákir á himni.

Flugumferðin hefur aukist hratt síðustu ár og ekkert lát virðist á. Árið 2020 er því spáð að losun gróðurhúsalofttegunda frá flugi verði 70 prósent meiri en árið 2005 samkvæmt því sem segir á vef Umhverfisstofnunnar. Og rekja má rúm 2 prósent af heildarlosun í heiminum til flugstarfsemi. Þrátt fyrir að fólk verði sífellt meðvitaðra um þetta þá dregur ekki úr áhuga okkar á að fljúga. Til marks um það þá kemur fátt í veg fyrir að ferðametið sem Íslendingar settu í fyrra verði bætt í ár.

Sem dæmi um hversu mikið flugumferðin mengar þá er losun á hvern farþega í flugi á milli Íslands og Kaupmannahafnar, báðar leiðir, á við losun frá litlum einkabíl í rúmt hálft ár. Það á þó ekki við um allar flugferðir samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar á vegum samtakanna ICCT þar sem lagt var mat á hvaða flugfélög nýta þotueldsneytið best miðað við fjölda farþega og fluglengd. Litið var til 20 af þeim flugfélögum sem eru stórtækust í flugi milli Evrópu og Norður-Ameríku. Icelandair og WOW eru umsvifamikil á þeim markaði.

Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að Norwegian nýtir eldsneytið best og þar á eftir kemur WOW air með þrettán prósent lakari nýtingu en norska flugfélagið. Þotur Icelandair þurfa svo um 29 prósent meira eldsneyti á hvern floginn kílómetra en þotur Norwegian og 15 prósent meira en WOW air. Nýtingin hjá Icelandair er í meðallagi af þeim 20 flugfélögum sem mæld voru en uppistaðan í flota flugfélagsins eru Boeing 757 þotur sem eru orðnar rúmlega 20 ára. Meðalaldur flugvélanna sem WOW air nýtir er um þrjú ár. Þess er getið í skýrslu ICCT að eldsneytisnýtingin hjá Icelandair ætti að lækka á næstu árum með tilkomu nýrra Boeing MAX þota sem félagið er nú að taka í notkun. Þær eyða um fjórðungi minna en gömlu þoturnar.

Betri nýting á eldsneyti skrifast þó ekki bara á aldur hreyfla og flugvéla. Sá þáttur vegur engu að síður þyngst (39%) og þar á eftir kemur fjöldi sæta um borð (33%). Þeim mun meira bil sem er á milli sæta því verri verður eldsneytisnýtingin og því koma stóru evrópsku flugfélögin, British Airways og Lufthansa, illa út úr samanburðinum enda þau vinsæl hjá þeim sem vilja mikið pláss um borð. Fá stór sæti með mikið sætabil viðskiptafarrými um borð í þotum Norwegian og WOW air er því ein af ástæðum þess að flugfélögin tróna á toppnum samkvæmt því sem segir í skýrslu ICCT.  Forstjóri WOW hefur reyndar boðað aukna áherslu á stór sæti, svokölluð Comfy og Premium sæti.

Sætanýting og þyngd á frakt skýra svo um 28% af heildarnýtingu olíunnar sem dælt er á þoturnar sem fljúga milli Evrópu og Norður-Ameríku.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …