Samfélagsmiðlar

Nýrri og minni þotur og færri sæti á fremsta farrými

Forstjóri Lufthansa telur ljóst að eftirspurn eftir sætum á viðskiptafarrými í flugi félagsins til Norður-Ameríku dragist saman. Öðru máli gegnir um flugið til Asíu.

Breiðþotum í flugflota Lufthansa fer nú fækkandi.

Nú þegar miklu færri eru á ferðinni en áður og ferðalög milli heimsálfa liggja nærri niðri þá nýta flugfélög í auknum mæli minni flugvélar en áður. Þetta sýnir samantekt greinenda OAG en samkvæmt henni hefur hlutfall Airbus A319, A320 og A321 þota aukist í háloftunum og sama má segja um Boeing 737 þotur. Á sama tíma eru flugfélög að leggja stórum breiðþotum eins og Airbus A380 og Boeing 767.

Í greiningu OAG segir að nú setji flugfélög í forgang að fljúga eyðslugrönnum flugvélum og leggi í staðinn þeim eldri fyrr en áður hafi verið gert ráð fyrir.

Það eru þó ekki bara þoturnar sem breytast því skipulagið í farþegarýminu tekur nú líka breytingum. Þar sjá sum flugfélög fram á að fækka stóru sætunum fremst í flugvélunum því eftirspurn eftir þeim dregst líklega saman.

Forstjóri Lufthansa Group, Carsten Spohr, telur sig alla vega sjá þá þróun í kortunum. Af þeim sökum er unnið að því innan þýsku samsteypunnar að minnka viðskiptafarrýmið í flugflota félagsins en fjölga í staðinn þeim sætum í almennu farrými þar sem fótaplássið er aðeins meira, svokallað Economy Premium farrými. Þetta á helst við um flugvélarnar sem nýttar eru í flug innan Evrópu og til Norður-Ameríku. Forstjóri Lufthansa segir í viðtali við Aerotelegraph að gera megi ráð fyrir að fjöldi viðskiptafarþega á þessum svæðum nái ekki sömu hæðum og fyrir heimsfaraldur. Hann er hins vegar bjartsýnni á að markaðurinn í Asíu verði sterkur áfram.

Flugfloti Lufthansa mun líka taka breytingum á næstu árum því félagið vinnur nú að því að breyta pöntunum sínum hjá Airbus og Boeing á breiðþotum í minni flugvélar.

Þess má geta að Icelandair hafði um árabil á boðstólum Economy Premium farrými en það var lagt niður.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …