Samfélagsmiðlar

Skera niður stærstan hluta af fluginu milli Íslands og Ítalíu

Ferðirnar héðan til Rómar eftir áramót verða miklu færri en lagt var upp með.

Á sama tíma og erlendum ferðamönnum hefur fækkað umtalsvert þá stækkar hópur ítalskra ferðalanga á landinu. Síðustu þrjá mánuði komu hingað um sex þúsund fleiri Ítalir en á sama tíma árið 2019. Skýringin á þessari jákvæðu þróun liggur í stórauknu framboði á beinu flugi til Keflavíkurflugvallar á vegum Wizz Air.

Þotur félagsins hafa síðustu mánuði flogið hingað reglulega frá Mílanó, Napólí og Róm en á þessum tíma árs hafa flugsamgöngur milli Íslands og Ítalíu vanalega legið niðri. Icelandair hefur til að mynda aldrei haldið úti vetrarflugi til Ítalíu.

Fyrstu þrjá mánuði næsta árs gerði áætlun Wizz Air ráð fyrir um eitt hundrað flugferðum til Keflavíkurflugvallar frá ítölsku borgunum þremur. Samkvæmt talningu Túrista hefur félagið hins vegar fellt niður um tvær af hverjum þremur ferðum. Þannig hefur allt Íslandsflug frá Napóli verið sett á ís fram á vorið og aðeins nokkrar ferðir verða farnar frá Róm.

Ferðir frá Mílanó verða þó með nokkuð hefðbundnum hætti þó færri en upphaflega var lagt upp með.

Sumaráætlun fluggeirans hefst formlega í lok mars og núverandi áætlun Wizz Air gerir ráð fyrir að félagið taki að nýju upp tíðar ferðir til Íslands frá ítölsku borgunum þremur og einnig frá Feneyjum. Það verður í fyrsta sinn sem áætlunarflugi er haldið út á þeirri flugleið.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …