Samfélagsmiðlar

Ekki ljóst hverjir geta nýtt sér flugið milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar

Unnið er því að bæta úr þeim annmörkum sem voru á flugferðunum á sínum tíma.

Farþegar á Akureyrarflugvelli munu á ný geta flogið þaðan til Keflavíkurflugvallar.

Á alþjóðaflugvöllum er innanlandsflug vanalega stór hluti af starfseminni en svo er ekki á Keflavíkurflugvelli. Þaðan fljúga allar flugvélar til útlanda. Icelandair samsteypan spreytti sig þó á ferðum milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar á árunum 2017 til 2019 en með hléum.

Þarna var þó ekki um hefðbundið innanlandsflug að ræða.

Íbúar á Reykjanesi gátu til að mynda ekki innritað sig í flug til Akureyrar í Leifsstöð og Akureyringur á leið til Sandgerðis mátti ekki fljúga með heldur varð að fara til Reykjavíkur.

Ferðirnar milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar voru nefnilega eingöngu fyrir þá sem voru á leið í millilandaflug og það var passað var upp á að farþegar sem komu að norðan færu ekki út úr Leifsstöð.

Nú hefur Icelandair uppi áform um að taka upp þráðinn á þessari flugleið og fljúga tvær ferðir á dag. Það liggur hins vegar ekki fyrir hvort áfram verði gerð krafa um að eingöngu farþegar á leið til útlanda geti flogið frá Akureyri til Keflavíkurflugvallar. Í svari flugfélagsins segir að ætlunin sé að bæta úr þeim annmörkum sem áður voru og unnið verði að úrbótum með samstarfsaðilum á flugvöllum.

Skýrara svar fékkst ekki frá flugfélaginu.

Megin áhersla á farþega Icelandair

Þegar Icelandair hætti ferðunum milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar á sínum tíma þá sögðu stjórnendur félagsins að eftirspurnin eftir ferðunum meðal heimamanna fyrir norðan hefði verið góð en erlendir ferðamenn hefðu verið of fáir.

Flugið stóð þó ekki eingöngu farþegum Icelandair til boða því þeir sem flugu til Keflavíkurflugvallar með erlendum flugfélögum gátu líka flogið þaðan beint norður. Þessir farþegar urðu hins vegar að sækja töskurnar sínar við komuna til Keflavíkurflugvallar, fara í vopnaleit í töskusal og bíða þar eftir fluginu norður. Farþegar Icelandair gátu hins vegar innritað sinn farangur alla leið norður.

Þegar þessar flugferðir hefjast á ný þá verður megin áherslan lögð á farþega Icelandair samkvæmt svörum frá flugfélaginu. En samtals munu tuttugu og þrjú önnur flugfélög halda úti áætlunarflugi til Keflavíkurflugvallar í sumar.

Farþegar sem vilja fljúga beint frá Akureyri út í heim geta frá og með byrjun sumars nýtt sér ferðir Niceair til London, Kaupmannahafnar og Tenerife.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …