Samfélagsmiðlar

Ennþá er Boeing í vandræðum með Max þoturnar

Fyrsta eintakið af Boeing Max10 var framleitt árið 2019 en forstjóri flugvélaframleiðandans gerir ekki ráð fyrir að þoturnar fái samþykki flugmálayfirvalda í ár.

Óhætt er að segja að framleiðsla á farþegaþotum hjá Boeing hafi einkennst af alvarlegum göllum síðastliðinn áratug eða svo. Í ársbyrjun 2013 voru allar þær Dreamliner þotur sem komnar voru í notkun kyrrsettar eftir að vandamál komu upp í rafgeymum vélanna. Flugbannið varði í rúma þrjá mánuði og enn þann dag í dag fylgjast flugmálayfirvöld vestanhafs óvenju náið með framleiðslu á þessari tegund farþegaþota. Vandamálin heyra nefnilega ekki sögunni til og það sama má segja um Boeing Max þoturnar.

Þær voru kyrrsettar í mars 2019 eftir tvö flugslys þar sem 346 manns létu lífið. Nærri tveimur árum síðar fengu flugfélög að taka Max þoturnar sínar í notkun á ný og þá af gerðinni Max8 og Max9.

Boeing bíður nefnilega ennþá eftir leyfi til að afhenda flugfélögum Max7 og Max10 þotur þó liðin séu fjögur ár frá því að fyrsta eintakið af þeirri fyrrnefndu var framleitt og þrjú ár frá fyrstu ferð Max10.

Og nú eru lobbístar Boeing komnir í kapphlaup við tímann því um áramótin ganga í gildi reglur sem kveða á um að allar nýjar farþegaþotur skuli vera með öflugara viðvörunarkerfi í flugstjórnarklefanum en er í Max þotunum í dag.

Núverandi kerfi mun vera nærri óbreytt frá forverum Max þotanna, þ.e. Boeing 737NG samkvæmt frétt Flight Global. Þar segir að kostnaðurinn við að bæta kerfið verði gríðarlegur og því miklir hagsmunir í húfi fyrir flugvélaframleiðandann.

Forstjóri Boeing er þó ekki vongóður um að bandarísk flugmálayfirvöld samþykki bæði Max7 og Max10 fyrir áramótin. Hann vonast þó til að sú minni fái grænt ljós og því óumflýjanlegt að setja þurfi betri kerfi í þær stærri.

Max þotunum í flota Icelandair hefur fjölgað umtalsvert að undanförnu og í júní sl. skrifaði félagið undir viljayfirlýsingu um kaup á fjórum í viðbót. Þau eintök voru framleidd árið 2018 en Boeing átti nú í sumarbyrjun ennþá um 240 tilbúnar en óseldar Max þotur. Og samkvæmt viðmælanda Túrista sem er öllum hnútum kunnugur hjá Boeing þá hefur Icelandair fengið „bargain price“ á þessu fjórum þotum.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …