Ný fimm manna stjórn Isavia var skipuð af Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra, á ársfundi þessa opinbera hlutafélags á fimmtudaginn. Stjórnina skipa fulltrúar stjórnarflokkanna þriggja auk eins Pírata og fulltrúa Miðflokksins. Í varastjórninni eru líka fólk sem tengist stjórnmálaflokkunum og mun þessi skipting vera venju samkvæmt. „Það hefur verið hefð fyrir því að þingflokkarnir, skipt eftir stjórnarflokkum og stjórnarandstöðuflokkum, tilnefni einstaklinga í stjórn og varastjórn Isavia. Stjórn er svo formlega kjörin á aðalfundi af ráðherra, eða í umboði hans,” segir í svari fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn Túrista.
Í Noregi og Svíþjóð heyra stærstu flugvellir landanna tveggja undir ríkisfyrirtækin Avinor og Swedavia. Fyrirkomulagið er því samskonar og hér á landi en pólitík ræður ekki þegar valið er í stjórnir Avinor og Swedavia. Í Svíþjóð er reglan sú að sérstök nefnd skilgreinir þær hæfniskröfur sem gera skal til þeirra sem sitja í stjórnum ríkisfyrirtækja. Kröfurnar eru m.a. byggðar á starfsemi viðkomandi fyrirtækis, framtíðarverkefnum og samsetningu stjórnar. Í framhaldinu fer í gang ráðningarferli stjórnarmeðlima sem endar með því að stjórn ríkisfyrirtækisins er mynduð. Auk þess fá starfsmenn Swedavia að velja einn úr sínum röðum til að sitja í stjórn og annan til vara. Stjórnarfólkið hefur ekki tengsl við stjórnarmálaflokka samkvæmt því segir í svari Swedavia.
Starfsfólk Avinor í Noregi á þrjá fulltrúa í átta manna stjórn fyrirtækisins en það er samgönguráðuneytið sem skipar hina fimm stjórnarmeðlimina. En ekki út frá störfum fyrir stjórnmálaflokka heldur starfsreynslu og þá sérstaklega úr viðskiptalífinu samkvæmt því sem segir í svari við fyrirspurn Túrista. Í reglugerð um starfsemi Avinor segir að innan stjórnarinnar skuli vera næg þekking til að tryggja að fyrirtækið sýni frumkvæði í rekstri flughafnar sem og í flugöryggismálum. Þetta eru sambærilegar kröfur og gerðar eru til þeirra sem sitja í stjórnum íslenskra fjármálafyrirtækja því þeim ber að hafa þekkingu á þeirri starfsemi sem viðkomandi fjármálafyrirtæki stundar.
Hvort það fólk sem skipar nýja stjórn Isavia myndi uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til starfsbræðra þeirra í Noregi og Svíþjóð skal ósagt látið. En stjórnina skipa Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, og er hann fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Frá Framsókn kemur Matthías Páll Imsland, fyrrum aðstoðarmaður félagsmálaráðherra og fyrrverandi forstjóri Iceland Express, en honum var vikið úr því starfi árið 2011. Ingimundur og Matthías hafa setið í stjórn Isavia síðustu fjögur ár. Nýju stjórnarmeðlimirnir eru Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins og systir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fulltrúi VG er Valdimar Halldórsson, framkvæmdastjóri Hvalasafnsins á Húsavík og Eva Pandora Baldursdóttir, fyrrverandi þingkona Pírata.
Þau fjögur sem sitja í varastjórn Isavia koma líka úr röðum þessara sömu flokka, þar á meðal er aðstoðarmaður samgönguráðherra og framkvæmdastjóri Vinstri-grænna.